Leiðtogar ISIS falla hver á fætur öðrum Samúel Karl Ólason skrifar 8. september 2017 13:12 Meðlimir stjórnarhers Bashar al-Assad nærri Deir Ezzor. Vísir/AFP
Hernaðaryfirvöld Bandaríkjanna sögðust í gær hafa fellt tvo leiðtoga Íslamska ríkisins nærri Mayadin í Sýrlandi. Þeir hefðu fallið í loftárásum þar þann 4. september. Þá segjast Rússar einnig hafa fellt fjóra háttsetta meðlimi samtakanna nærri borginni Deir Ezzor. Í tilkynningu frá bandalagi Bandaríkjanna gegn ISIS segir að mennirnir sem hafi verið felldir hafi heitið Abu Anas al-Shami og Junaid ur Rehman. Al-Shami þróaði vopn og sprengjur fyrir hryðjuverkasamtökin og útbjó sprengjur sem vígamenn ISIS hafa komið víða fyrir í gildrum. Rehman var verkfræðingur sem vann að því að vopnvæða dróna sem sem ISIS-liðar hafa beitt gegn andstæðingum sínum. Drónarnir eru notaðir til að varpa sprengjum og kanna orrustuvelli.Emír Deir Ezzor allurVarnarmálaráðuneyti Rússlands sagði í morgun að þeir hefðu komist á snoðir um fund háttsettra meðlima ISIS nærri Deir Ezzor og hefðu gert loftárás á neðanjarðarbyrgi samtakanna. Ráðuneytið segir 40 vígmenn hafa fallið. Þar á meðal hafi verið fjórir leiðtogar ISIS. Einn þeirra er sagður heita Abu Muhammad al-Shimali, sem einnig er sagður hafa gengið undir nafninu Emír Deir Ezzor. Þá segir ráðuneytið að þeim hafi borist vísbendingar um að stríðsráðherra ISIS, Gulmurod Khalimov hafi særst alvarlega í árásinni og verið fluttur á brott. ISIS-liðar eru á undanhaldi víða og hafa nánast verið reknir alfarið frá Írak. Comparison of territory controlled by the Islamic State group from January 2015 to August 2017 in Iraq and Syria pic.twitter.com/gRDzr7lztj— AFP news agency (@AFP) September 6, 2017
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fleiri fréttir Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Sjá meira