Á fjórða þúsund manns í ósamþykktu húsnæði Benedikt Bóas skrifar 13. júní 2017 07:00 Frá aðgerðum lögreglu og slökkviliðs við Köllunarklettsveg þegar þurfti að loka iðnaðarhúsnæði í nóvember síðastliðnum. vísir/stefán „
Markmiðið er ekki að hreinsa út úr svona húsnæði. Markmiðið er að eldvarnir séu í lagi,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS), en honum var falið að kortleggja núverandi ástand á óleyfisíbúðum á höfuðborgarsvæðinu.Jón Viðar Matthíasson slökkvliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins.vísir/stefánHann telur að á fjórða þúsund manns búi í slíku húsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Staðfest er að 1.035 íbúar búa í óleyfisíbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Flestir eru í Reykjavík, eða 461, en flest börn búa í óleyfisíbúðum í Kópavogi, eða 30. Alls búa 94 börn í 39 óleyfisíbúðum. „Það eru íbúðir mjög víða en það er mikilvægt að taka það fram að ekki eru allar íbúðir með slakar eldvarnir. Mikið af þessum íbúðum er til fyrirmyndar en í öðrum mætti bæta þær. Við viljum líka heyra frá fólki ef það er óöruggt með eldvarnir hjá sér,“ segir hann. Jón Viðar bendir á að þegar slökkviliðsmenn fara í útkall verði þeir að hafa á bak við eyrað að þar inni séu mögulega íbúar. „Við höfum þurft að loka húsnæði, oftar en einu sinni. Ástandið var þá þannig að það var ekki hægt að bæta úr aðstæðum,“ segir hann. Frá árinu 2008 hefur óleyfisíbúðum í Hafnarfirði fjölgað um 60, eða úr 21 heimilisfangi í 81. Í Mosfellsbæ eru nú 19 þekkt heimilisföng en voru sjö árið 2008. Alls eru 132 óleyfisíbúðir í Reykjavík, 63 í Kópavogi og 15 í Garðabæ.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sjá meira