Eldur í mosa á Snæfellsnesi rakinn til logandi sígarettu Atli Ísleifsson skrifar 13. júní 2017 15:07 Eldurinn logaði á um 1.500 fermetra svæði. Umhverfisstofnun/Bjargey Ólafsdóttir
Eldur sem kviknaði í gær í mosa og lyngi við gömlu vermannagötuna sem liggur frá Sandhólum um Beruvíkurhraun í Dritvík er talinn hafa kviknað út frá logandi sígarettu. Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar. Þar segir að eldurinn hafi logað á um 1.500 fermetra svæði og breiðst hratt um mosabreiðuna sem liggur um þrjú hundruð metra frá bílastæðinu hjá gönguleiðinni. „Þjóðgarðsvörður, landverðir og sjálfboðaliðar Þjóðgarðsins brugðust skjótt við að hefta útbreiðslu eldsins og náðu að lokum að slökkva hann. Tók verkið um tvær klukkustundir og var svæðið vaktað fram að miðnætti. Jón [Björnsson, þjóðgarðsvörður á Snæfellsnesi] er starfsmaður Umhverfisstofnunar sem hefur umsjón með friðlýstum svæðum. Segir hann mikið happ að hann skyldi verða eldsins var svo skjótt, því eldurinn hefði að öðrum kosti breiðst mjög hratt út. Hann telur eldsupptök þau að reykingamaður hafi hent frá sér logandi sígarettu í skraufþurran mosann. Ekki hafi rignt í þjóðgarðinum í þrjár vikur og nærri hafi legið að mjög illa færi. Þjóðgarðsvörður vill brýna fyrir gestum Þjóðgarðsins að fara varlega með eld. Henda alls ekki sígarettustubbum út í náttúruna heldur taka þá með sér. Auk eldhættu sé sóðaskapur af stubbum,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Erlent Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Innlent Fleiri fréttir Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Sjá meira