Mannfall meðal Rússa sagt hafa aukist í Sýrlandi Samúel Karl Ólason skrifar 2. ágúst 2017 14:48 Rússneskur hermaður stendur vörð í Palmyra. Vísir/AFP
Mannfall meðal Rússa er sagt hafa aukist verulega í Sýrlandi á árinu og er þegar orðið hærra en það var allt árið í fyrra. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar fréttaveitunnar Reuters hafa minnst 40 Rússar fallið í Sýrlandi. Yfirvöld í Rússlandi segja hins vegar að einungis tíu hafi fallið. Reuters ræddi við fjölskyldumeðlimi og vini manna sem hafa fallið eða jafnvel sveitastjórnendur í heimabyggðum þeirra. Tekið er fram í niðurstöðum þeirra að líklega sé raunverulega talan hærri þar sem fjölskyldumeðlimir hafi verið hvattir til þess að tjá sig ekki um dauðsföllin.Þá viðurkenni yfirvöld Rússlands ekki að verktakar berjist með hernum, en vera þeirra í Sýrlandi gæti brotið gegn lögum um að almennir borgarar megi ekki berjast sem málaliðar í öðrum ríkjum. Talsmaður Varnarmálaráðuneytis Rússlands segir að um hreinar og beinar lygar sé að ræða. Hins vegar segir hershöfðinginn Igor Konashenkov að tilraunir til þess að skilgreina „einstaklinga sem koma ekki að hernum, né aðgerðum í Sýrlandi“ sem menn sem hafi fallið í bardögum vera rangt.Það útilokar ekki að um málaliða sé að ræða. Sömuleiðis sagði Dmitry Peskov, talsmaður Vladimir Putin, forseta Rússlands, að „mögulega“ væru rússneskir ríkisborgarar í Sýrlandi sem sjálfboðar með sýrlenska hernum eða í „öðrum tilgangi“. Þeir hefðu hins vegar ekkert að gera með ríkisstjórnina og Varnarmálaráðuneytið. Hann sagði einnig að ekki kæmi til greina að endurskoða tölur ráðuneytisins. Ekki væri hægt að treysta öðrum tölum en þeim opinberu.Konashenkov tók einnig fram í yfirlýsingu sinni að ráðuneytið vissi hverjir stæðu að baki útgáfu fréttarinnar og hverjir hefðu aðstoðað við gerð hennar. Reuters segir tölur um mannfall vera mjög viðkvæmar upplýsingar í Rússlandi, en þremur mánuðum áður en Rússar hófu aðgerðir í Sýrlandi gaf Putin út tilskipun um að upplýsingar um mannfall á friðartímum yrði gert leyndarmál.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Sjá meira