Fótbolti

Íslendingar sem gista í stórborgunum geta ekki fagnað of lengi í kvöld

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Leiknum lýkur um ellefu og síðasta lest til Amsterdam fer á miðnætti.
Leiknum lýkur um ellefu og síðasta lest til Amsterdam fer á miðnætti. vísir/vilhelm
Þeir Íslendingar sem gista í Rotterdam og Amsterdam á meðan Evrópumóti kvenna í fótbolta stendur yfir geta ekki fagnað og/eða skemmt sér of lengi í Tilburg í kvöld eftir leik Íslands og Frakklands.

Stelpurnar okkar hefja leik á EM 2017 á Koning Willem II-vellinum í Tilburg í kvöld en leikurinn við Frakklands verður flautaður á klukkan 20.45 að staðartíma. Honum lýkur því rétt tæplega ellefu.

Knattspyrnusambands Íslands bendir á það að á heimasíðu sinni að síðustu lestarferðir frá Tilburg til stórborganna Amsterdam og Rotterdam er á miðnætti en ekki eru aðrar lestarferðir frá borginni fyrr en daginn eftir.

Þeir Íslendingar sem ætla því að nýta sér lestina verða að passa upp á að skoða lestarferðir ætli þeir að komast heim.

Af öðrum mikilvægum upplýsingum sem vert er að hafa í huga má nefna að bakpokar eru leyfðir í stúkunni en mælst er til þess samt sem áður að sleppa því að vera með bakpoka. Leitað verður í öllum bakpokum og getur sú leit hægt á flæði áhorfenda inn á völlinn.

Ekki missa af neinu tengdu stelpunum okkar á EM 2017 í Hollandi. Íþróttadeild 365 er með öflugt teymi fréttamanna á mótinu og færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af íslenska liðinu. Fylgdu okkur á FacebookTwitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Annað tækifæri til að heilla

Stelpurnar okkar hefja leik á EM í Hollandi í kvöld þegar þær mæta Frakklandi í fyrsta leik í Tilburg.

Fyrirliði Frakka: Þurfum að vinna litlu úrslitaleikina okkar

Það verður við ramman reip að draga fyrir stelpurnar okkar í Tilburg í kvöld enda franska landsliðið eitt það allra besta í heimi. Wendy Renard, fyrirliði Frakklands, talaði um litlu úrslitaleikina sem bíða liðsins á næstu átta dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×