Fótbolti

Annað tækifæri til að heilla

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Íslensku stelpurnar ætla að standa þétt saman í fyrsta leiknum sínum á EM í dag eins og á æfingunni á Konunglega vellinum í Tilburg í gær.
Íslensku stelpurnar ætla að standa þétt saman í fyrsta leiknum sínum á EM í dag eins og á æfingunni á Konunglega vellinum í Tilburg í gær. Vísir/Vilhelm
Sagt er að enginn fái nema eina tilraun til að heilla við fyrstu kynni. Stelpurnar okkar fá þó annað tækifæri í kvöld þegar þær mæta Frakklandi í fyrsta leik liðsins á EM 2017 í Hollandi en leikurinn fer fram á Koning Willem II-vellinum í Tilburg. Íslenska liðið var í sömu stöðu á EM 2009 í Finnlandi þegar það komst fyrst á stórmót. Þá var fyrsti mótherjinn líka Frakkland.

Stelpurnar okkar voru fullar sjálfstrausts fyrir þann leik og þær skoruðu fyrsta markið sem reyndist einnig síðasta mark liðsins á mótinu og aðeins eitt af þremur sem stelpurnar hafa skorað í sjö leikjum í lokakeppni. Sjálfstraustið var meira spenna og gleði yfir að vera komnar á stórmót. Líklega voru þær ekki alveg tilbúnar.

Átta árum síðar fá stelpurnar okkar fullkomið tækifæri til að ná í óvænt úrslit og sýna Evrópu að þær séu reiðubúnari í slaginn núna en þær voru þá. Reynslan er mikil í liðinu og undirbúningurinn hefur snúist mikið um andlegu hliðina.

Brosmildar landsliðskonur á æfingu í gær.Vísir/Vilhelm

Trúa á sigur

„Ég var 18 ára á fyrsta mótinu okkar 2009. Það var fyrsta mótið fyrir okkur allar. Það var rosalega hátt spennustig og við vorum stressaðar fyrir leikinn á móti Frakklandi. Ég man bara að við spiluðum ekki vel,“ segir fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir en hún sat fyrir svörum á blaðamannafundi íslenska liðsins í gær. Sara er sú eina í hópnum sem hefur spilað alla leiki Íslands á EM.

„Tilfinningarnar voru svo út um allt. Ég man bara að mér leið ekki vel eftir leikinn. Við lærðum samt mikið af mótinu. Við erum orðnar betri leikmenn og betra lið. Við erum reynslumiklar enda búnar að fara á tvö stórmót núna. Það er komin meiri reynsla í liðið núna og við erum orðnar miklu betri,“ segir Sara.

Eins og fyrir átta árum eru stelpurnar fullar sjálfstrausts og hafa óbilandi trú á sjálfum sér. Og af hverju ekki? Liðið fór upp úr gríðarlega erfiðum riðli á EM 2013 fyrir fjórum árum og komst í átta liða úrslitin.

Sjálfstraustið er ekkert annað en sjálfstraust núna og það skein úr augum Söru þegar franskur blaðamaður spurði hana hvort stelpurnar okkar tryðu því að þær gætu unnið Frakka.

„Já, auðvitað. Þarftu einhver frekari svör? Þetta er einföld spurning. Maður getur alltaf unnið öll lið. Franska liðið er sigurstranglegra en við erum vel undirbúnar fyrir leikinn og mótið. Styrkur okkar er andlegi þátturinn og varnarleikurinn og viðhorfið. Ef allt þetta gengur upp þá getum við unnið þær,“ segir Sara Björk.

Freyr Alexandersson, Guðbjörg Gunnarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir á blaðamannafundi í gær.Vísir/Vilhelm

Frábært varnarlið

Franska liðið er eitt það besta í heimi í dag, númer þrjú á styrkleikalistanum og númer tvö í Evrópu. Á meðan íslenska liðið hefur átt í vandræðum með að skora að undanförnu fékk Frakkland ekki mark á sig í undankeppninni og er ósigrað í ellefu leikjum á árinu. Markaskorun gæti orðið vandamál annað kvöld.

„Það hefur samt ekki vantað upp á færin hjá okkur. Þær frönsku eru með frábært varnarlið. Við þurfum að nýta þau færi sem við fáum. Við erum búin að vinna eins vel í þeim málum og kostur er á.

Leikmennirnir eru eins tilbúnir og þeir verða til að takast á við færin sem við fáum,“ segir Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari sem tilkynnti stelpunum byrjunarliðið klukkan 17.00 að staðartíma í gær.

„Ég er handviss um að við stillum upp besta liðinu sem við getum mögulega sett. Það sem er búið að gerast er búið og þetta eru leikmennirnir sem ég valdi og hef úr að velja. Ég gæti ekki verið sáttari við undirbúninginn okkar. Við vitum allt um Frakkana þó þeir viti ekki allt um okkur. Við vitum hvernig við viljum spila leikinn,“ segir Freyr Alexandersson.

Ekki missa af neinu tengdu stelpunum okkar á EM 2017 í Hollandi. Íþróttadeild 365 er með öflugt teymi fréttamanna á mótinu og færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af íslenska liðinu. Fylgdu okkur á FacebookTwitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×