Krafa vegna 30 tjóna á Héraði eftir spennufall Garðar Örn Úlfarsson skrifar 8. júlí 2017 06:00 Óhapp hjá Norðuráli í Hvalfirði olli straumleysi á Austfjörðum vegna veikleika í byggðalínukerfinu, segir Landsnet. vísir/stefán
Bæta þarf þeim, sem urðu fyrir skakkaföllum þegar rafmagni sló út á Suðurlandi og Austfjörðum í vor, tjónið að fullu án frekari tafar, segir bæjarráð Fljótsdalshéraðs sem fengið hefur umbeðna greinargerð Landsnets vegna atviksins. „Upphaf truflunar er rakið til fyrirvaralausrar útleysingar álags Norðuráls klukkan 07.05 en kerskáli 2 leysti út vegna kerleka með um 340 MW álag. Áhrifin voru svo mikil að í beinu framhaldi drógu bæði ISAL og Járnblendið úr álagi ásamt Fjarðaáli. Alls fóru því 560 MW af neti á skömmum tíma. Orsök straumleysis og truflana í rafmagnsgæðum (spennu) er hins vegar kerfislæg og tengist veikri byggðalínu,“ segir í greinargerðinni um óhappið sem varð 17. maí síðastliðinn. Fram kemur að Landsneti hafi borist tilkynningar um tjón frá þrjátíu aðilum á Fljótsdalshéraði einu, af þeim séu fimmtán einstaklingar og fimm fyrirtæki auk einnar opinberrar stofnunar á Egilsstöðum og átta einstaklingar og ein stofnun í dreifbýli. „Enn eru tilkynningar að berast en allar tilkynningar eru sendar í úrvinnslu til Sjóvá, tryggingafélags Landsnets,“ segir um stöðu tjónamálanna. Útskýrt er í greinargerðinni að við hina skyndilegu álagsbreytingu hafi orðið miklar og ódempaðar sveiflur á milli vinnslueininga í Sigöldu og á Austurlandi sem tengist með langri byggðalínu með lítilli flutningsgetu. „Kerfisvarnir unnu samkvæmt stillingum en viðbrögð þeirra voru ekki nægjanleg til að bjarga kerfinu frá hruni,“ segir áfram. Hefðbundinn varnarbúnaður geti ekki varið gegn öllum tegundum af ódempuðum spennusveiflum eins og þarna urðu og ollu því að allt kerfið frá Fljótsdal í austri að Sigöldu í suðri leysti út.“ Landsnet segir að meðal áætlaðra úrbóta sé endurskoðun flutningsmarka byggðalínunnar og takmarkana í vinnslu eftir landsvæðum til að minnka líkur á kerfishruni við sambærilega atburði. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs kveðst þakka skjót svör frá Landsneti en ítrekar fyrri bókanir um eflingu dreifikerfis raforku um landið. „Mikilvægt er að ráðist verði í þær úrbætur sem tilgreindar eru í svörum Landsnets sem fyrst.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Sjá meira