Fullgilda viðauka við samþykkt um afnám nauðungarvinnu Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 14. júní 2017 19:00 Þorsteinn Víglundsson afhendir fullgildingu íslenskra stjórnvalda á bókun við samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunar um afnám nauðungarvinnu. Velferðarráðuneytið
Þorsteinn Víglundsson, félags-og jafnréttismálaráðherra, afhenti í morgun Guy Ryder, forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, fullgildingu íslenskra stjórnvalda á bókun við samþykkt stofnunarinnar um afnám nauðungarvinnu. Í bókuninni er meðal annars kveðið á um skyldu viðkomandi aðildarríkis að grípa skuli til virkra ráðstafana til að koma í veg fyrir nauðungarvinnu. Ríkinu ber að veita fórnarlömbum nauðungarvinnu vernd og aðgang að úrræðum. Auk þess er aðildarríkinu gert að leiða það í lög að þeir sem standi fyrir nauðungarvinnu sæti viðurlögum. Kveðið er á um þær skyldur sem á aðildarríkjunum hvíla sem eru að móta stefnu og áætlun um markvisst afnám nauðungarvinnu í samráði við samtök atvinnurekenda og launafólks. Í bókuninni er sérstaklega kveðið á um að ráðstafanir, sem gerðar eru, skulu einnig fela í sér „sérstakar aðgerðir gegn mansali í tengslum við nauðungarvinnu eða skylduvinnu.“Aðildarríkin ræða aðkallandi verkefni Alþjóðavinnumálaþingið kemur árlega saman í júnímánuði í Genf og var þetta ár engin undantekning. Fundur þeirra Þorsteins og Ryders var haldinn af tilefni 106. þings Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem hófst 5. júní og lýkur næstkomandi föstudag. Á þinginu hafa sendinefndir aðildarríkja Alþjóðavinnumálastofnunarinnar fjallað um aðkallandi verkefni á sviði félags-og vinnumála. Flutningur vinnuafls, loftslagsbreytingar, vinnuvernd og heilsa voru þar til umfjöllunar, svo einhver mál séu nefnd.Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasamband Íslands.Vísir/GVASegir baráttuna halda áframDrífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, er einn fulltrúa íslensku sendinefndarinnar á þinginu í Genf sem hún segir vera stærsta alþjóðlega viðburðinn þar sem vinnumarkaðsmál eru rædd. Fulltrúar í sendinefndinni séu í hringiðu alþjóðapólitíkur. Í samtali við Vísi segir Drífa að fullgildingin sé mikið fagnaðarerindi. „Það er náttúrulega alltaf mjög ánægjulegt þegar Ísland staðfestir bæði sáttmála og viðauka við sáttmálana því þá erum við hluti af alþjóðasamfélaginu og staðfestum það að við erum að gera þetta samkvæmt því sem alþjóðastaðlar segja til um.“ Spurð að því hvort nefndin sé með þessu að boða miklar breytingar í málaflokknum segir Drífa: „Við erum búin að vera í þessari baráttu lengi og hún heldur áfram.“
Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Trump tókst að fella Massie Erlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Erlent Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Sjá meira