Mótmæla fyrirhuguðum framkvæmdum Snærós Sindradóttir skrifar 15. júní 2017 07:00 Jáverk hefur fest kaup á öllum húsum við göturnar þrjár og hyggst rífa þau og byggja nýtt. Íbúar eru ósáttir og hafa undirritað áskoranir. Vísir/Ernir
Fjölmennur hópur íbúa í Kópavogi hefur skrifað undir tvær áskoranir þess efnis að svæði sem afmarkast af Hávegi, Álftröð og Skólatröð verði skipulagt í samráði við íbúa í nærliggjandi götum. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá hefur verktakafyrirtækið Jáverk keypt upp öll hús við þessar götur, sum á háu verði, tugum milljóna yfir fasteignamati. Á svæðinu er ekkert deiliskipulag í gildi en bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa sagt að engin vilyrði hafi verið gefin verktakafyrirtækinu um samþykkt deiliskipulags eftir höfði fyrirtækisins. Íbúarnir kalla meðal annars eftir því að vinnu við skipulagningu svæðisins verði hraðað svo réttarstaða nágranna verði ljós. Þá er kallað eftir því að stefna verði mótuð af bænum um þéttingaráform í grónum hverfum bæjarins. Ragnar Jóhannsson er á meðal þeirra sem standa fyrir annarri áskoruninni. Íbúar á svæðinu hafa áður knúið fram breytingar á byggingaráformum húss og fengið það lækkað um eina hæð. „En það hús var byggt og með bílakjallara þannig að það þurfti að berja það niður í klöppina með tilheyrandi látum. Það nötraði allt í heilt sumar. Við vitum að eitt hús tekur eitt og hálft ár og þar af sjö eða átta mánuði í að skaka niður kjallaranum. En ef þeir ætla að byggja heila götu og skaka það niður um eina hæð niður í Reykjavíkurgrágrýtið. Hvernig verður það?“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Fleiri fréttir Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sjá meira