Fundu myglu á þremur hæðum í flugturninum Haraldur Guðmundsson skrifar 9. júní 2017 07:00 Viðgerðir standa yfir í flugturninum við Reykjavíkurflugvöll, en þeim lýkur í haust. Um ár er síðan turninn var rýmdur vegna myglu. Vísir/Eyþór
Myglusveppur fannst á þremur af átta hæðum flugturnsins við Reykjavíkurflugvöll og hefur ríkisfyrirtækið Isavia þegar varið rúmum 30 milljónum króna í viðgerðir. Efstu tvær hæðir turnsins eru myglu- og rakalausar og hefur flugumferðarstjórn fyrir flugvöllinn verið sinnt þar síðan myglan uppgötvaðist í apríl í fyrra. Samkvæmt skriflegu svari Isavia við fyrirspurn Fréttablaðsins standa viðgerðir enn yfir. Þeim á að ljúka í haust eða rúmu ári eftir að turninn var rýmdur. Um 50 starfsmenn fyrirtækisins þurftu þá að flytja skrifstofur sínar í viðbyggingu við flugstjórnarmiðstöð Isavia við Reykjavíkurflugvöll eða í húsnæði dótturfélagsins Tern Systems í Hlíðasmára í Kópavogi. „Heilsa og öryggi starfsfólks er forgangsmál og þegar komnar voru niðurstöður úr sýnatöku sem sýndu að rakaskemmdir og mygla væru í húsinu var starfsfólki á skrifstofum strax fundinn nýr staður. Framkvæmdasvæðið var afmarkað svo framkvæmdir hefðu sem allra minnst áhrif á loftgæði í þeim hlutum húsnæðisins sem ósýktir voru,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia. Starfsfólk skrifstofu forstjóra Isavia, mannauðssviðs, hluta fjármálasviðs og deild þróunar- og stjórnunar höfðu skrifstofur í turninum. Þegar myglan var staðfest í apríl 2016 voru allir starfsmenn fyrirtækisins sendir í skoðun hjá hjúkrunarfræðingi. Ríkiskaup óskuðu í kjölfarið eftir þátttakendum í útboði á viðgerð á turninum. „Hreinsun og viðgerðir eru framkvæmdar undir eftirliti sérfræðinga, sem veita ráðgjöf um hvernig unnt verður að gera loftgæðin í skrifstofurýmum sem best. Meðal annars verður sett upp nýtt loftræstikerfi í byggingunni en það hefur einnig verið ráðist í niðurrif og hreinsun sem er lokið núna. Svo er uppsetning á kerfinu næst á dagskrá og að setja upp kerfisloft og nýtt byggingarefni fyrir það sem skipta þurfti út og var sýkt,“ segir Guðni.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sjá meira