Reynir toppar fellið í þúsundasta skiptið og Stuðmenn frumfluttu lag honum til heiðurs Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 31. maí 2017 20:54 Fjöldi manns kom saman í skemmtigöngu á Úlfarsfelli í kvöld. Vísir /Ernir
Um tvö þúsund manns mætti í skemmtigöngu á Úlfarsfelli í kvöld á vegum Ferðafélags Íslands. Tilefni göngunnar er að heiðra þá göngugarpa og félaga í ferðafélaginu sem gengið hafa fellið mörg hundruð sinnum og jafnvel þúsund sinnum. Einn þeirra sem gekk í þúsundasta skipti upp á Úlfarsfell í kvöld var Reynir Traustason. „Ferðin gekk eins og í sögu og endaði með því að ég fékk frumflutt lag frá Stuðmönnum,“ segir Reynir þegar fréttastofa Vísis heyrði í honum stuttu eftir gönguna. Lagið heitir Vor fyrir vestan og var meðal annars til heiðurs Reyni sem er uppalinn á Flateyri. Jakob Frímann Magnússon, stuðmaður, sagði í samtali við Vísi að lagið hefði fengið góðar undirtektir. „Þetta er bara lag sem var verið að telja í, í fyrsta skipti upp á fjallinu. Valgeir Guðjónsson samdi lagið,“ segir Jakob og bætir við að hljómsveitin hafi ákveðið að taka lagið upp eins fljótt og auðið er. „Við ákváðum að hraða okkur í stúdíó á morgun og gefa það út. Annað kvöld hefst hljóðritun á þessu vorlagi,“ segir Jakob og segir jafnframt að íslendingar megi búast við laginu á öldum ljósvakans hvað úr hverju enda megi engan tíma missa þar sem lagið hafi slegið í gegn í göngunni. Stuðmenn voru þó ekki þeir einu sem stigu á stokk í kvöld en Ragnar Bjarnason, einn þekktasti dægurlagasöngvari Íslands kom, söng og sveiflaði hendinni. ,,Þetta sló í gegn og svo kom Raggi í þyrlunni og gjörsamlega hitti í mark,“ segir Reynir en Raggi flutti lögin Vorkvöld í Reykjavík og óskalag þjóðarinnar Þannig týnist tíminn. Reynir segir að gríðarleg stemmning hafi verið í göngunni og að mun fleiri manns hafi mætt en búist var við. Hann segist þó ekki vera byrjaður að plana ferð þúsund og eitt en bætir við að hann sé þó hvergi nærri hættur. „Nú stefnum við í 1500 ferðir og svo 2000. Vonandi verður þetta bara árlegt,“ bætir Reynir við glaður í bragði.Vodafone var í beinni frá göngunni og hægt er að fylgjast með útsendingunni hér að neðan.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira