Leysibendli beint að þyrlu gæslunnar í flugi 11. apríl 2017 11:36 Leysibendli var beint að þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún var á flugi yfir íbúabyggð í Reykjavík í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm
Leysibendli var beint að þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún var á flugi yfir íbúabyggð í Reykjavík í gærkvöldi. Þyrlan var á leið í útkall þegar atvikið varð og bar áhöfn þyrlunnar saman um að veruleg hætta hefði geta skapast. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni frá læni í Vestmannaeyjum á níunda tímanum í gærkvöldi um að þyrla kæmi að sækja þangað sjúkling, en vegna lélegs skyggnis var ekki hægt að senda sjúkraflugvél. Rétt fyrir klukkan tíu fór þyrlan TF-GNA í loftið og var leysibendlinum beint að henni stuttu síðar. Geislanum var beint á vinstri hlið vélarinnar í stutta stund og truflaði hann flugið því lítið. Áhöfn þyrlunnar ber hins vegar saman um að veruleg hætta hefði geta skapast hefði geislinn hitt á framrúðuna og blindað flugmennina. TF-GNA lenti á Vestmannaeyjaflugvelli um 50 mínútum eftir brottför frá höfuðborginni en þar beið sjúkrabíll með sjúklinginn. Þyrlan lagði aftur af stað til Reykjavíkur klukkan ellefu og lenti hún á Reykjavíkurflugvelli um klukkan hálf tólf. Þaðan var sjúklingurinn fluttur á Landspítalann á Hringbraut. Þetta er í fimmta sinn á þessu ári sem Landhelgisgæslan sinnir sjúkraflugi til Vestmannaeyja.
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira