Segir utanríkisráðherra vera andstæðing þróunarsamvinnu Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 19. apríl 2017 14:00 Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri Grænna segir Guðlaug Þór Þórðarsson, utanríkisráðherra ekki ætla sér að standa við skuldbindingar Íslands. Mynd/samsett „
Það er sorglegt að Viðreisn og Björt Framtíð skuli leggja blessun sína á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar,“ segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri Grænna. Í grein í Fréttablaðinu í gær bendir Rósa á að ríkisstjórnin ætli sér ekki að standa við skuldbindingar í þróunarmálum sem samþykkt var með þingsályktunartillögu árið 2013. „Í fjármálaáætlun ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar til næstu 5 ára, kemur fram að Ísland ætlar að draga mun meira úr framlögum til þróunarmála en síðasta ríkisstjórn ákvað. Einnig stendur til að fækka samstarfslöndum í Afríku. Verði áætlunin samþykkt mun Ísland greiða helmingi minna til þróunarmála en ríkisstjórn VG og Samfylkingarinnar ætlaði sér að ná við mun verri efnahagsaðstæður en nú,“ skrifar Rósa í Fréttablaðið.Sjá: „Hverjir styðja samdrátt til þróunarmála?“ Ályktun Alþingis frá árinu 2013 kveður á um að framlög Íslands til þróunarmála eigi að hækka úr 0,26 prósent af vergum þjóðartekjum upp í 0,42 prósent árið 2016. Í ríkisfjármálaáætlun 2018 til 2022 er sagt að Ísland styðji við markmið Sameinuðu þjóðanna um að iðnríki skuli veita sem nemur 0,7 prósent af vergum þjóðartekjum til þróunarsamvinnu. Hinsvegar er gert ráð fyrir því í ríkisfjármálaáætlun 2018 til 2022 sem nú liggur fyrir Alþingi að þróunaraðstoð hækki úr 0,25 prósent í 0,26 prósent árið 2018 og haldist óbreytt til ársins 2022. „Þetta er í raun og veru samdráttur frá þeim fyrirheitum sem lagt var upp með þegar Gunnar Bragi Sveinsson var utanríkisráðherra, þetta er minna en Framsóknarflokkurinn vildi á síðasta kjörtímabili,“ segir Rósa í samtali við fréttastofu. „Þá er það athyglisvert að hugmyndir um þróunaraðstoð sem við sjáum í ríkisfjármálaáætlun er í takt við tillögur hagræðingarhópsins á síðasta kjörtímabili sem var undir forystu Vigdísar Hauksdóttur, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og Ásmundar Einars Daðasonar. Ég held að með þessum áherslum sýni Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, að hann sé andstæðingur þróunarsamvinnu,“ segir hún og bendir á að allir þingmenn hafi greitt atkvæði með þingsályktunartillögunni árið 2013 að Vigdísi Hauksdóttur undanskilinni.
Mest lesið Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Erlent Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Veður „Ég táraðist í flugvélinni“ Innlent Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð Innlent Vilja fá valdið aftur Innlent Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Erlent „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Innlent Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Innlent Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra Innlent Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Sjá meira