Gestir héldu eldinum í skefjum þegar kviknaði í Kaffi Krús Jóhann K. Jóhannsson skrifar 2. apríl 2017 13:06 Kaffi Krús á Selfossi. Vísir/GVA
Mildi var að ekki fór verr þegar eldur kom upp á veitingastaðnum Kaffi Krús á Selfossi í gær. Margt fólk var á staðnum og náðu veitingagestir að halda eldinum í skefjum þar til slökkvilið kom á vettvang. Húsið sem veitingastaðurinn kaffi Krúsi er í var byggt árið 1931 en veitingastarfsemi hefur verið á staðnum í 25 ár. Eldurinn kom upp á tíunda tímanum í gærkvöldi, í reykháfi sem er áfastur veitingastaðnum. Um leið og hann uppgötvaðist var staðurinn rýmdur og kallað eftir aðstoð Brunavarna Árnessýslu. „Þetta var mikið sjokk,“ segir Tómas Þórodsson, eigandi Kaffi Krúsar en hann segir að veitingasalurinn hafi verið fullur af gestum þegar eldurinn uppgötvaðist. „Starfsfólkið brást hárrétt við, hringdi strax á slökkviliðið og lét rýma svæðið. Það voru nokkrir Selfyssingar uppi á efri hæðinni að borða. Þeir stukku niður í eldhús, náðu í slökkviliðstæki og náðu að kæfa eldinn,“ segir Tómas. Hann hrósar slökkviliðinu á Selfossi mikið fyrir viðbragstíma slökkviliðsmanna. „Slökkviliðið var mætt eftir eina og hálfa mínútu sem er ótrúlegt, þvílíkir fagmenn. Þeir rifu klæðninguna og náðu að slökka eldinn,“ segir Tómas. Eldurinn logaði upp undir þakskeggi og ljóst að illa hefði farið ef eldurinn hefði náð að læsa sig í þakið en húsið er gamalt timburhús. Tómas segir að brunan í gær koma til með að hafa einhver áhrif á reksturinn næstu daga. „Efri hæðin er lokuð núna en við ætlum að reyna að halda úti lágmarksþjónustu,“ segir Tómas sem telur það vera heppni að ekki hafi farið verr. „Þett er eitt af kennileitum Selfoss, þetta var bara þvílík lukka.“
Mest lesið Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Innlent Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Innlent Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Innlent Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Erlent Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Innlent Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Erlent Sósíalistum bolað úr Bolholti Innlent Sambýliskonan sem sá allt og bróðirinn sem þekkti ekki fjölskylduna Innlent Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Innlent „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Innlent Fleiri fréttir Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sósíalistum bolað úr Bolholti Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Lokametrar, bútasaumur og Starbucks Veiðigjaldið aftur í nefnd og viðræður komnar á lokametra Lára snýr sér að kynningarstörfum fyrir HR Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Skellt upp úr í þingsal þegar ráðherra reyndi að mynda hjarta Rúv vildi Ísraelsmenn burt en þeir sluppu með skrekkinn í bili Lögðu hald á mikið magn fíkniefna og fleiri milljónir Eiríkur, Eyvindur og Þorbjörg sækjast eftir dómaraskikkjunni Samfylking tekur aftur fram úr Sjálfstæðisflokki Skoða málið en hafa ekki tekið endanlega ákvörðun um aðgerðir Stór ferðahelgi framundan og bæjarhátíðir víða um land Skjálfti að stærð 3,6 í Bárðarbungu Þingmenn upplitsdjarfir Öðrum þeirra handteknu sleppt úr haldi Þokast í samkomulagsátt á þingi Sakfelldur en ekki gerð refsing fyrir að bana móður sinni Tveir handteknir eftir húsleit í Laugardal og Kópavogi Bandaríska sendiráðið elur á ótta við hælisleitendur og útlendinga Vonast til að samkomulag náist innan skamms, vonandi í dag Sambýliskonan sem sá allt og bróðirinn sem þekkti ekki fjölskylduna Engar fréttir af þinglokum en veiðigjöldin ekki á dagskrá í dag Sjá meira