Sameiningar sveitarfélaga gætu greitt götu flugvalla- og framhaldsskólareksturs Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 25. mars 2017 21:09
Með frekari sameiningum sveitarfélaga á næstu árum væri hægt að flytja fleiri verkefni til þeirra, meðal annars framhaldsskóla og rekstur flugvalla. Þetta segir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Skapa þurfi hvata fyrir sveitarfélög þannig að þau sjái ávinning af því að sameinast. Frá árinu 1990 hefur sveitarfélögum fækkað um meira en helming vegna sameininga, nú síðast þann 1. janúar 2013, þegar Garðabær og Álftanes sameinuðust. Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, vill sjá frekari sameiningu sveitarfélaga á næstu árum og segist greina jákvæðari tón en oft áður meðal sveitarfélaga í þá átt. „Ég held að það sé alla vega mikil ástæða fyrir okkur að skoða það hvernig við getum hjálpað þeim til þess að stíga þessi skref - alla vega að við séum ekki að þvælast fyrir þeim,“ segir Jón. Hann segir Jöfnunarsjóð sveitarfélaga geta verið þröskuld fyrir sveitarfélög að sameinast vegna tekjumissis. Því þurfi að skapa ákveðna hvata fyrir sveitarfélög þannig að þau sjái ávinning og hagræði af því að sameinast. „Við erum að horfa til þess að reyna að losa um þetta og búa til hvata, jafnvel í gegnum jöfnunarsjóðinn, og ef til vill á öðrum sviðum til þess að ýta þá undir þessar viðræður ef vilji er til hjá mönnum.“ Á undanförnum árum hafa sveitarfélögin tekið við nokkrum fjölda verkefna úr höndum ríkisins, nú síðast málefni fatlaðra árið 2011. Jón segir frekar sameiningu sveitarfélaga geta gert þau betur í stakk búinn til að taka við fleiri verkefnum á næstu árum.Hvers konar verkefni væru það?„Við getu nefnt verkefni eins og framhaldsskólana. Við erum búin að færa grunnskólann, nú er framhaldsskólinn orðinn styttri og það eru víðar um land komnir framhaldsskólar sem er mjög jákvætt,“ segir Jón. Þá mætti einnig skoða verkefni á sviði velferðarmála og samgangna. „Við getum nefnt til dæmis rekstur flugvalla á landsbyggðinni. Er það jafnvel réttlætanlegt að það sé í höndum sveitarfélaga sem að eru með starfsemi og þekkingu til þess að taka jafnvel að sér þessi verkefni? Það má líta til margra hluta í þessum efnum.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Fleiri fréttir Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Sjá meira