Rannsaka eiginkonu forsetaframbjóðandans Fillon Kjartan Kjartansson skrifar 28. mars 2017 22:27 Fillon-hjónin, Penelope og Francois, sem sökuð eru um spillingu. Vísir/EPA
Formleg rannsókn á Penelope Fillon, eiginkonu forsetaframbjóðandans Francois Fillon, er hafin i Frakklandi. Eiginmaður hennar er sakaður um að hafa greitt fjölskyldu sinni hundruð þúsunda evra af opinberu fé fyrir störf sem hún vann ekki. Penelope Fillon var yfirheyrð í dag en opinber rannsókn hófst á Francois fyrr í þessum mánuði, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Fillon er sakaður um að hafa greitt spúsu sinni eins og hún væri aðstoðarmaður sinn á þingi. Hún er hins vegar sögð hafa unnið lítið sem ekkert fyrir fénu, hún hafi ekki haft aðgang að þinghúsinu, fáir vissu af því að hún væri á meðal starfsmanna Fillon og þá hefur verið bent á misvísandi upplýsingar í skráningu á vinnutíma. Áður en ásakanirnar komu upp var Fillon talinn líklegastur til að vinna forsetakosningarnar í Frakklandi. Nú mælist hann hins vegar með minna fylgi en Emmenuel Macron, frambjóðandi miðjuaflanna, og Marine Le Pen, frambjóðandi hægriöfgaflokksins Þjóðfylkingarinnar. Fillon-hjónin neita bæði allri sök.
Tengdar fréttir Kosningastjóri Fillon segir af sér Patrick Stefanini hefur sagt af sér sem kosningastjóri Francois Fillon, forsetaframbjóðanda Repúblikana í Frakklandi. 3. mars 2017 23:30 Franskir Repúblikanar styðja Fillon Leiðtogar innan franska Repúblikanaflokksins hafa ákveðið að halda Francois Fillon sem forsetaframbjóðanda flokksins. 6. mars 2017 22:32 Fillon hvetur stuðningsmenn sína til að gefast ekki upp Francois Fillon, hélt ræðu á fjöldasamkomu í París í dag, þar sem þúsundir mættu til að sýna honum stuðning. 5. mars 2017 17:00 Lögregla framkvæmir húsleit á heimili Fillon Lögregla í Frakklandi hefur gert húsleit á heimili forsetaframbjóðandans Francois Fillon. 2. mars 2017 18:59 Hefja formlega rannsókn á Fillon vegna gruns um spillingu Franski forsetaframbjóðandinn Francois Fillon sætir nú formlegri rannsókn af hálfu franskra yfirvalda vegna gruns um spillingu en hann er sakaður um að hafa borgað meðlimum úr fjölskyldu sinni þúsundir evra fyrir störf sem þeir inntu aldrei af hendi. 14. mars 2017 20:31 Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Innlent Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni Erlent Fleiri fréttir Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Sjá meira
Kosningastjóri Fillon segir af sér Patrick Stefanini hefur sagt af sér sem kosningastjóri Francois Fillon, forsetaframbjóðanda Repúblikana í Frakklandi. 3. mars 2017 23:30
Franskir Repúblikanar styðja Fillon Leiðtogar innan franska Repúblikanaflokksins hafa ákveðið að halda Francois Fillon sem forsetaframbjóðanda flokksins. 6. mars 2017 22:32
Fillon hvetur stuðningsmenn sína til að gefast ekki upp Francois Fillon, hélt ræðu á fjöldasamkomu í París í dag, þar sem þúsundir mættu til að sýna honum stuðning. 5. mars 2017 17:00
Lögregla framkvæmir húsleit á heimili Fillon Lögregla í Frakklandi hefur gert húsleit á heimili forsetaframbjóðandans Francois Fillon. 2. mars 2017 18:59
Hefja formlega rannsókn á Fillon vegna gruns um spillingu Franski forsetaframbjóðandinn Francois Fillon sætir nú formlegri rannsókn af hálfu franskra yfirvalda vegna gruns um spillingu en hann er sakaður um að hafa borgað meðlimum úr fjölskyldu sinni þúsundir evra fyrir störf sem þeir inntu aldrei af hendi. 14. mars 2017 20:31