Hálffylltu gám af rusli sem lá víða á Ægisíðu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 20. febrúar 2017 07:00 Ríflega hundrað manns lögðu hönd á plóg og tíndu upp rusl og drasl til að gera umhverfið snyrtilegra. vísir/anton
Rúmlega hundrað sjálfboðaliðar gengu meðfram strandlengju Ægisíðunnar og Seltjarnarness í gær og tíndu upp rusl sem varð á vegi þeirra. Skipuleggjandi tínslunnar segir að henni hafi dottið þetta í hug og ákveðið að gera þetta. „Ég bjóst ekki við nema tíu til tuttugu manns,“ segir Þórdís Þórhallsdóttir. Hún las fregnir af fólki sem gengið hafði um Laugarnesið á dögunum og hugsaði með sér að hún gæti alveg staðið fyrir sambærilegum viðburði sjálf. „Ég mundi eftir orðunum „ef ekki ég, hver þá? Ef ekki núna, hvenær?“ og ákvað að gera þetta.“ Þórdís áætlar að alls hafi um 130 manns mætt til að leggja hönd á plóg. Þar af hafi verið á þriðja tug manns frá alþjóðlegu sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS. „Ég vissi ekki hverju ég átti að búast við. Ég hélt fyrst að það myndu ekki svona margir mæta þannig þetta var framar björtustu vonum. Það höfðu um hundrað manns meldað sig á viðburðinn á Facebook og ég held að flestir hafi mætt og margir hafa dregið einhvern með sér,“ segir Þórdís. Fólk hafi mætt með marka, foreldra, börn og gæludýr til að gera Ægisíðuna þrifalegri. Svæðið sem fólkið gekk um nær frá vesturenda flugbrautar 13-31 á Reykjavíkurflugvelli og að mörkum Reykjavíkur og Seltjarnarness. Þar mætti hópurinn öðrum hópi sem gengið hafði um Seltjarnarnesið í sömu erindagjörðum. Hóparnir tveir mættust síðan á miðri leið og settu afraksturinn í þar til gerðan gám. Verkið hófst upp úr hádegi og lauk um klukkan fjögur. Talsvert magn af rusli safnaðist en Þórdís segir að í lokin hafi verið um hálfur gámur af svörtum ruslapokum. Þegar pokarnir fylltust hafi þeir verið skyldir eftir og þátttakendur með kerrur eða á pallbílum tekið þá upp. „Ég bý nálægt Ægisíðunni og þetta er vinsælt útivistarsvæði. Margir ganga, skokka eða hjóla meðfram sjónum á degi hverjum. Það er mikilvægt að þessi vinsæli staður sé snyrtilegur svo fólk haldi áfram að nýta sér hann,“ segir Þórdís. Aðspurð segir Þórdís að það sé óvíst hvort hún muni standa fyrir sambærilegum viðburði aftur seinnar meir. „Ef þú sérð rusl í kringum þig ekki bíða með að hreinsa það. Gerðu þetta bara. Þú getur ekki treyst á það að einhver annar muni hreinsa þetta fyrir þig,“ segir hún að lokum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira