Átta dauðsföll vegna alvarlegra atvika sem urðu á Landspítala Sveinn Arnarsson skrifar 22. febrúar 2017 06:30 Í skýrslu Landspítalans um starfsemi árið 2016 kemur fram að fimmtán svokölluð „óvænt dauðsföll“ hafi verið skráð í bækur spítalans það ár. vísir/vilhelm
Af þeim fimmtán óvæntu dauðsföllum sjúklinga á Landspítalanum árið 2016 eru átta dauðsföll rakin til mistaka sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir. Fjöldi dauðsfalla af þessum sökum hefur verið svipaður síðustu ár.Elísabet Benedikz yfirlæknir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁNÍ skýrslu Landspítalans um starfsemi árið 2016 kemur fram að fimmtán svokölluð „óvænt dauðsföll“ hafi verið skráð í bækur spítalans það ár. Sjö dauðsföllin eru vegna náttúrulegra orsaka að mati Elísabetar Benedikz, yfirlæknis gæða- og sýkingavarnardeildar spítalans. Til að mynda hafa einstaklingar lagst inn vegna krabbameins en látist af sökum hjartaáfalls. Er það talin vera náttúruleg orsök. Hin átta tilvikin eru af öðrum toga að mati Elísabetar. „Þetta eru alvarleg atvik í þjónustunni, sem hefði líklega mátt koma í veg fyrir og leiddu beint eða óbeint til dauða sjúklings,“ segir Elísabet. „Helstu ástæður eru mannlegir þættir en heilbrigðisþjónusta hvílir mjög mikið á mannlegum þáttum, sem eru ófullkomnir. Hin meginástæðan eru kerfisþættir, gallar í skipulagi starfseminnar og fyrirkomulagi þjónustunnar.“ Elísabet segir löndin sem við berum okkur saman við vera á svipuðum stað hvað þetta varðar. „Við erum með sama hlutfall alvarlegra atvika og erum að kljást við alveg sömu vandamál og þau. Þannig að við skerum okkur ekki úr að þessu leyti. “Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira