Þrír maraþonhlauparar urðu fyrir eldingu í Kaupmannahöfn Anton Egilsson skrifar 17. september 2017 14:14 Frá Kaupmannahöfn. Vísir/Getty
Hið árlega Kaupmannahafnarhálfmaraþon fór fram í dag en blása þurfti hlaupið af vegna rafmagnsleysis áður en stór hluti keppanda komst í mark. Þrumuveður skall á í borginni á meðan hlaupinu stóð en lögregla hefur staðfest að þrír hlauparar séu slasaðir eftir að hafa orðið fyrir eldingu. Fréttaveitan Berlingske greinir frá þessu. Í tilkynningu á heimasíðu hlaupsins segir að hlaupinu hafi verið aflýst öryggisins vegna auk þess sem að þeim tilmælum er beint að bæði keppendum og áhorfendum að koma sér heim hið snarasta. Vegna rafmagnsleysins er ekki hægt að staðfesta hlaupatími keppanda en vonast er til að þess að greitt verði úr því sem fyrst. Þegar ákvörðun var tekinn um að blása hlaupið af hafði hluti keppanda þegar komið í mark en einn þeirra er Hinrik Árni Wöhler, námsmaður í Danmörku. Í samtali við Vísi segir hann aðstæður í hlaupinu hafa verið ansi erfiðar. „Hlaupið var virkilega skemmtilegt, góð leið í fallegu umhverfi í hjarta Kaupmannahafnar. En eftir 90 mínútur byrjaði heldur betur að rigna og þrumur og eldingar létu sjá sig.“ Það hafi í kjölfarið legið við að hann þyrfti að stinga sér til sunds á lokakaflanum. „Það má segja að þetta hafi breyst úr götuhlaupi yfir í tvíþraut, hlaup og sund. Fyrstu 20 kílómetrarnir voru virkilega góðir, 15 gráður og lítill vindur. Hins vegar var síðasti kílómeterinn eins og að vaða í Krossánni. Það má því segja að veðurguðirnir hafi ekki verið hliðhollir hlaupurum þarna á lokasprettinum.“Det er en flod, der har dannet sig på Øster Alle i København. Stadig ingen strøm i målområdet. pic.twitter.com/s5CvWMpJNb— Henrik Fallesen (@hfallesen) September 17, 2017
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Sjá meira