Stöðvuðu 2400 vöruflutningabíla í fyrra Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 30. maí 2017 13:30 Jón Sigurður Ólason er yfirlögregluþjónn á Vesturlandi. Hann segir eigendum vöruflutningabíla skylt að hafa ökurita um borð sem sýna akstur og hvíldartíma ökumanna. MYND/JÓN ARNAR SIGURÞÓRSSON
Þrír sérútbúnir lögreglubílar sinna vegaeftirliti með vöruflutningabifreiðum á þjóðvegum landsins en mættu vel vera sex að mati Jóns Sigurðar Ólasonar, yfirlögregluþjóns á Vesturlandi. Alls voru 2.400 vöruflutningabílar stöðvaðir af lögreglu í fyrra til að kanna akstur og hvíldartíma.„Trukkaumferð á Íslandi er í raun ekki mikil en hún verður áberandi og þétt tvisvar á sólarhring; snemma á morgnana og seint á kvöldin þegar bílarnir halda af stað frá sínum höfuðstöðvum,“ segir Jón og bætir við að lögreglan sé tiltölulega fljót að fara yfir sviðið þegar kemur að eftirliti með vöruflutningabílum. „Þetta eru mikið til sömu trukkarnir sem keyra á milli landshluta og þarf af leiðandi erum við fljótir að sigta út bíla sem við erum nýbúnir að stoppa. Verkefnin eru þó ærin þegar kemur að eftirlitinu.“ Þann 1. janúar í fyrra var umferðareftirlitið flutt frá Samgöngustofu til þriggja lögregluembætta: lögreglustjórans á Vesturlandi, lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og lögreglustjórans á Suðurlandi. „Í umferðareftirlitinu framkvæmum við vegaskoðanir á flutningabílum, sem þó eru ekki jafn nákvæmar og þegar farið er með bílana í skoðun. Skoðað er ástand bifreiðar, hvort dekk séu í lagi og hvort búnaður virki rétt. Ef eitthvað reynist í ólestri eru menn boðaðir í skoðun á næstu skoðunarstöð eða sendir rakleiðis á verkstæði til viðgerða.“Athuga ekki með mansal í íslenskum flutningabílumLögreglan skoðar einnig farm vöruflutningabíla sem þeir stoppa handahófskennt á vegunum. „Þegar farmur er skoðaður er athugað hvort hann sé rétt frágenginn og hvort hann falli undir ADR-farm, eða hættulegan farm. Strangar reglur gilda um flutning ýmissa efna sem ekki má flytja saman og þurfa ökumenn þess háttar farms ákveðin ökuréttindi umfram meirapróf. Langleiðina sýnist mér þó að menn fari að lögum og vegna landamæra okkar höfum við ekki ástæður til að athuga með mansal eða flutninga á fólki í vöruflutningabifreiðum,“ upplýsir Jón. Akstur- og hvíldartími atvinnubílstjóra er lögbundinn og er skoðaður hverju sinni sem lögregla tekur bíl út í eftirliti á vegum. „Við tökum allt fyrir þegar við stöðvum vöruflutningabíl á vegum úti: vigtum bílinn, athugum frágang á farmi og afritum upplýsingar úr rafrænum ökuritum sem gefa upp aksturstíma, hvíldartíma, hvenær farið var af stað, hvenær akstri lauk og hvenær pásur voru teknar. Ökuritarnir kjafta frá öllu enda oft kallaðir kjaftakerlingar,“ segir Jón kankvís. Rafrænir ökuritar eru núorðið í flestum vöruflutningabílum en ökuritar eru einnig í eldri bílum. „Gömlu ökuritarnir eru skífa með nál sem skrifar niður sömu upplýsingar á pappír. Þeir ökuritar gilda enn og segja það sama en þeim fer fækkandi.“Brot vegna ökurita Jón kom nýlega heim frá Noregi þar sem hann segir aðstöðu Norðmanna til fyrirmyndar til að taka út heilu trukkalestirnar til skoðunar. „Á síðasta ári stoppuðum við alls 1.125 vöruflutningabíla til að kanna þyngd og stærð. Athugun á hleðslu, farmi og merkingu á farmi fór fram á tæplega 600 bílum. Þá voru 2.400 vöruflutningabílar stöðvaðir handahófskennt af lögreglu í fyrra vegna aksturs- og hvíldartíma.“ Þetta þýði þó ekki að ökumenn hafi gerst brotlegir og segir Jón að fremur lágt hlutfall lendi í kæru. „Maður heyrir stundum á atvinnubílstjórum að eigandi bílanna geri kröfur um langan akstur en þá er til þess að líta að brjóti ökumaður reglur um hvíldartíma fær sá hinn sami háa sekt og eigandinn líka. Sem dæmi er sektin 60 þúsund krónur fyrir ökumann sem fer 30 prósent yfir hvíldartíma og fær eigandinn þá sömuleiðis 90 þúsund króna sekt.“ Sá kvittur hefur gengið að eigendur vöruflutningabíla taki ökurita úr bílum sínum eða hreinlega sleppi því að hafa þá um borð til að fela langan vinnudag atvinnubílstjóra. „Eigendum vöruflutningabíla er skylt að hafa ökurita um borð og er refsivert að taka þá úr,“ útskýrir Jón. „En þeir geta svo sannarlega skipt um bíla til að aka fleiri en einum bíl sama daginn en ökuritakortið á þá alltaf að fylgja ökumanninum og á hann að taka það með sér úr einum bíl yfir í þann næsta. Á hinn bóginn er eitthvað um að menn keyri án þess að setja ökuritakortið í bílinn, sem er brot, og einnig hafa komið upp mál þar sem menn eru að keyra á korti einhvers annars.“Ekki enn lent á meiraprófslausum atvinnubílstjóraUmferðareftirlit lögreglunnar sinnir fleiri verkefnum en eftirliti með vöruflutningabifreiðum á þjóðvegum landsins og var með 1.600 önnur umferðalagabrot á síðasta ári, þar af hraðakstur, ölvunarakstur og vímuefnaakstur. „Við biðjum ökumenn undantekningarlaust um ökuskírteini og höfum ekki enn lent á meiraprófslausum manni. Menn passa sig nokk á að hafa það í lagi. Þeir vita að þeir geta átt von á að verða stoppaðir og stórir lögreglubílar í vegaeftirlitinu eru vel sýnilegir; allt öðruvísi en aðrir lögreglubílar. Þetta eru stórir sendibílar, merktir lögreglunni og stundum má sjá þá úti í kanti á þar til gerðu skoðunarplani, til dæmis við Blikdalsá undir Esju, þar sem við tökum trukkana í eftirlit,“ segir Jón og er almennt sáttur við ástandið. „Íslensk vörubílamenning er í góðum farvegi en það er vitaskuld alltaf einhver brotalöm á. Flestir passa sig og gera vel. Víst er mikið af bílum á vegunum og alltaf eitthvað um umferðaróhöpp og slys enda hefur það sitt að segja að allir flutningar eru komnir á land til að mæta kröfu nútímans um að fá vörurnar heim nýjar og ferskar.“
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira