Íbúar Ásbúðar hundleiðir á hundsgelti í götunni Sveinn Arnarsson skrifar 6. júní 2017 07:00 Segja má að Ásbúð sé farin í hundana að mati íbúa. vísir/Sigurjón Ólason
Íbúar við götuna Ásbúð í Garðabæ eru orðnir hundleiðir á gelti fjölda hunda í götunni. Í tveimur húsum, að mati íbúa, eru rekin annars vegar einhvers konar hundahótel eða dagvistun fyrir hunda og í öðru húsi fer hundaræktun fram. Íbúar krefjast þess að strangari reglur séu settar um hundahald í götunni. Fjórtán íbúar hafa ritað bréf til bæjarstjórnar Garðabæjar þar sem þeir óska tafarlausra úrbóta í málinu. „Við þetta ástand getum við ekki unað, einhverjar hömlur eða strangar reglur þarf að setja viðkomandi hundaeigendum. Því eru það tilmæli okkar hér við yfirvöld bæjarfélagsins að koma þeim skilaboðum til hundaeigenda að reglum um hundahald í þéttbýli og friðhelgi íbúanna sé virt,“ stendur í bréfi íbúanna. Einn íbúi í götunni telur að í einu húsi séu tólf hundar að staðaldri. Héraðsdýralæknir Matvælastofnunar, Konráð Konráðsson, hafði ekki vitneskju um starfsemi í götunni. Slík starfsemi er tilkynningarskyld til stofnunarinnar. Ætlaði hann að kanna málið og ræða við hlutaðeigandi aðila. Bréf íbúanna var tekið fyrir á fundi bæjarráðs þann 30. maí.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Innlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Erlent Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Greiðvikni kom í bakið á fjórum Innlent Fleiri fréttir Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Ein breyting í sveitarstjórn Kaldarananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent