Norskir rasistar trylltust yfir tómum strætósætum Samúel Karl Ólason skrifar 2. ágúst 2017 13:14 Myndin umrædda. Facebook
Norskir rasistar urðu fokreiðir á dögunum yfir mynd af tómum sætum í strætó. Myndin var sett á Facebooksíðuna Fedrelandet viktigst, sem gróflega þýtt er „föðurlandið fyrst“, með textanum: „Hvað finnst fólki um þetta?“. Töldu margir að um væri að ræða hóp kvenna í búrkum og þar væri komin sönnunin fyrir íslamsvæðingu Noregs. Rúmlega þrettán þúsund manns eru inn á síðunni, en myndin hefur farið víða um internetið eftir að skjáskot voru birt af færslunni og viðbrögðum við henni. „Sorglegt“, „ógnvænlegt“, „sjúkdómur“, „kvennakúgun“ og „ógeðslegt“ voru meðal orða sem meðlimir hópsins notuðu til að tjá tilfinningar sínar um þessi tómu sæti. Aðrir sögðu að „þetta fólk“ muni taka yfir heiminn og gera hann hræðilegan. Þá gáfu einhverjir í skyn að þær hulduverur sem að þau sáu á myndinni gætu borið vopn og sprengjur undir fötum sínum.Vildi skemmta sér Sindre Beyer, maðurinn sem tók skjáskotin af umræðunni, sagði í samtali við Nettavisen að hann hefði fylgst með umræddri síðu um langt skeið. Hann segir það koma sér sífellt á óvart hve mikið hatur sé á síðunni og hve oft svokölluðum falsfréttum sé dreift þar. Einnig var rætt við Johann Slåttvik, sem setti upprunalegu færsluna inn. Hann sagði markmið sitt hafa verið í þremur liðum. Fyrst vildi hann skoða mismuninn á milli blindra fordóma og þar að auki hafi hjarðhegðun vakið áhuga hans. Þriðja markmiðið var að skemmta sér. Nettavisen ræddi einnig við Rune Bergleund Steen, forsvarsmann andkynþáttahatursstofnunar Noregs. Hún sagði atvikið sýna fram á að fólk sæi það sem það vildi sjá og að þetta fólk hafi viljað sjá hættulega múslima. Samkvæmt Guardian voru búrkur nýverið bannaðar í skólum í Noregi.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira