„Fáum sýnishorn af vetri í þessari viku“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. febrúar 2017 08:07 Það er smá vetur í kortunum í vikunni. Vísir/Pjetur
Búast má við því að snjói í flestum landshlutum næstkomandi miðvikudag og fimmtudag og þá spáir Veðurstofa Íslands frosti víðast hvar. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir því að það sé „útlit fyrir að við fáum sýnishorn af vetri í þessari viku,“ en landsmenn hafa ekki farið varhluta af því undanfarið að veður hefur verið nokkuð milt miðað við árstíma. Í hugleiðingum veðurfræðings segir annars að í dag megi búast við vestan strekkingi en hægari vindi norðan lands. Þá verða víða snjóél og hiti um frostmark en við ströndina um sunnanvert landið verður hlýrra og úrkoman í formi rigningarskúra. Það dregur svo úr úrkomu og vindi í kvöld. „Í fyrramálið verður lægð skammt sunnan við land. Henni fylgir allhvöss austanátt sunnanlands með slyddu eða snjókomu og úrkoman færist síðan yfir á austanvert landið þegar líður á daginn og vindur verður norðlægari. Á Vesturlandi rofar til og gæti sést til sólar, sem er tilbreyting frá þokunni sem var um helgina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga:Vestan 8-15 metrar í dag, en hægari vindur norðanlands. Víða él og hiti nálægt frostmarki, en skúrir við sjávarsíðuna á sunnanverðu landinu með hita að 5 stigum. Lægir víða í kvöld.Austan og norðaustan 10-18 metrar á sekúndu og slydda eða snjókoma á morgun sunnan- og síðar austanlands. Norðaustan 8-13 metrar á sekúndu og úrkomulítið vestan- og norðvestanlands. Hiti kringum frostmark.Á þriðjudag:Austan og norðaustan 13-18 metrar á sekúndu sunnan- og austanlands og snjókoma, slydda eða rigning. Norðaustan 8-13 metrar á sekúndu og úrkomulítið vestan- og norðvestanlands. Hiti kringum frostmark.Á miðvikudag og fimmtudag:Austan- og suðaustanátt, yfirleitt á bilinu 8-15 metrar á sekúndu. Él eða snjókoma í flestum landshlutum og frost 0 til 5 stig.Á föstudag:Vaxandi suðaustan- og austanátt með úrkomu og hægt hlýnandi veðri. Víða hvassviðri og snjókoma undir kvöld, en rigning sunnanlands og frostlaust þar.Á laugardag:Hvöss austanátt á norðaverðu landinu framan af degi með snjókomu eða slyddu, en annars hægari sunnanátt með éljum eða slydduéljum. Hiti kringum frostmark.Á sunnudag:Útlit fyrir suðaustanátt með éljum, en bjart norðaustantil á landinu. Hiti um eða undir frostmarki.
Mest lesið Opna í Kaupmannahöfn en loka loftrýminu yfir Osló einnig vegna dróna Erlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Innlent Lýsa eftir Karli Helgasyni Innlent Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn Innlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent Hertogaynjan fær reisupassann vegna tölvupósts til Epstein Erlent Vill frekar fjölga lögreglumönnum heldur en lögreglustöðvum Innlent Jimmy Kimmel snýr aftur á skjáinn Erlent Kastrup lokað vegna drónaflugs Erlent Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent Fleiri fréttir Vill frekar fjölga lögreglumönnum heldur en lögreglustöðvum Lýsa eftir Karli Helgasyni Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ 20 börn frá Grænlandi í sundi, skautum og í heimsókn hjá forsetanum Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Löng bið eftir að nauðgari hefji afplánun og betlmenning Sleppt lausum eftir yfirheyrslu Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjá meira