Innlent

Hagsmunaskráning hæstaréttardómara: Eru í launuðum aukastörfum og eiga jarðir úti á landi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Markús Sigurbjörnsson, Viðar Már Matthíasson,  Ólafur Börkur Þorvaldsson og Eiríkur Tómasson hæstaréttardómarar.
Markús Sigurbjörnsson, Viðar Már Matthíasson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Eiríkur Tómasson hæstaréttardómarar. Vísir/Ernir
Meirihluti dómara við Hæstarétt, eða sex af tíu, eru í launuðum aukastörfum samhliða dómarastarfinu. Þá eiga þrír dómarar eignarhluti í félögum og sex dómarar eiga aðrar fasteignir en til eigin nota.

Þetta kemur fram í hagsmunaskráningu hæstréttardómara sem birt var á vef Hæstaréttar fyrir helgi en dómararnir ákváðu að birta skrá yfir hagsmuni sína í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um fjármál nokkurra hæstaréttardómara í desember.

Þeir dómarar sem eru í launuðum aukastörfum eru Benedikt Bogason, Eiríkur Tómasson, Helgi Ingólfur Jónsson, Karl Axelsson, Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson. Á meðal þeirra starfa sem dómararnir taka að sér eru kennsla, að vera prófdómarar og/eða seta í nefndum hins opinbera.

Þá eiga þeir Benedikt, Helgi Ingólfur, Karl, Viðar Már og Þorgeir Örlygsson hluti í jörðum úti á landi en þær eru skráðar undir öðrum fasteignum en til eigin nota. Ólafur Börkur er sá sjötti sem skráir hagsmuni undir þeim lið en hann á eignarhluti í fasteignum í landi Ormsstaða í Grímsnes-og Grafningshreppi og eignarhluti í sumarbústað og sumarbústaðalandi.

Valsmenn, Framari og Bliki

Benedikt á svo 25 prósent af hlutafé í einkahlutafélaginu Mjóanesi, nafnverð 125.000 krónur, en um Mjóanes ehf. segir í hagsmunaskráningunni:

„Hluthafar eru eigendur samnefndrar jarðar og skiptist hlutaféð eftir eignarhluta þeirra í jörðinni. Tilgangur félagsins er að fara með sameiginleg málefni vegna eignarhalds jarðarinnar.“

Viðar Már á helmingshlut í Skógræktarfélaginu Ármúla en Karl á hlutafé í Valsmönnum hf. að nafnvirði 250.000 krónur. Það félag á lóðir í Vatnsmýrinni. Hæstiréttur kvað upp dóm í júní að neyðarbrautinni skyldi lokað en rétt er að taka fram að Karl dæmdi ekki í málinu. Í kjölfar dóms Hæstaréttar seldu Valsmenn hf. tvær lóðir af átta sem opnuðust til bygginga vegna lokunar neyðarbrautarinnar.

Karl er ekki eini Valsarinn í hópi hæstaréttardómara þar sem Helgi Ingólfur er einnig skráður í íþróttafélagið Val. Þá er Benedikt skráður í Fram og Ólafur Börkur í Breiðablik.


Tengdar fréttir

Markús telur sig ekki hafa verið vanhæfan

Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, átti í umfangsmilklum hlutabréfaviðskiptum á árunum fyrir hrun en hefur ekki vikið sæti í svokölluðum hrunnmálum.

Héraðsdómarar hafa ekki rætt skráningu

Hæstiréttur mun birta hagsmunatengsl dómara frá og með áramótum. Ekki er ljóst hvort eða með hvaða hætti héraðsdómarar munu fylgja í kjölfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×