Hættuleg ládeyða umferðarráðs Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. júní 2017 07:00 Ólafur Guðmundsson hjá EuroRAP. mynd/eurorap
Ólafur Guðmundsson, tæknistjóri alþjóðlegu vegaöryggissamtakanna EuroRAP á Íslandi, segir það hafa bitnað á umferðaröryggi að engin starfsemi hafi verið undanfarin ár í fagráði um umferðarmál sem taka átti við verkefnum Umferðarráðs eftir 2013. Fréttablaðið greindi frá því á þriðjudag að annað ráð, sem sett var á laggirnar með breytingum á sama tíma, fagráð um flugmál sem taka átti við af Flugráði, hafi aðeins fundað sex sinnum og ekki starfað síðan í október 2015. „Það er til skammar en fagráð umferðarinnar hefur ekki fundað í að minnsta kosti tvö ár. Og það er til enn meiri skammar af því að á því sviði erum við að tapa um tvö hundruð manns á ári í alvarlegum umferðarslysum og banaslysum,“ segir Ólafur. Nýtt fagráð um umferðarmál var loks fullskipað í maí að sögn Guðbergs Reynissonar sendibílstjóra sem samgönguráðherra skipaði formann ráðsins fyrr á árinu. Guðbergur segir nýja ráðið hafa haldið sinn fyrsta fund 18. maí síðastliðinn þar sem kjörin hafi verið stjórn. Guðbergur átti sæti í fyrra fagráðinu. Hann er annar tveggja stofnenda Facebook-síðunnar Stopp – hingað og ekki lengra, sem látið hefur til sín taka varðandi umferðaröryggismál. Í fagráðinu eiga sæti um 25 fulltrúar frá ráðuneytum, stofnunum og hagsmunasamtökum. Ráðinu er ætlað að vera vettvangur samráðs og á að beita sér fyrir umferðaröryggi. Ólafur segir að fagráðið hafi aðeins fundað örfáum sinnum í upphafi áður en það lagðist í dvala. Þetta verkleysi hafi haft neikvæð áhrif. „Þessi vettvangur var mikilvægur í áratugi, þar sem yfir tuttugu aðilar hittust, fóru yfir stöðuna og fóru í aðgerðir. Nú er ekkert í gangi,“ segir Ólafur sem kveður slysatölur staðfesta þetta. Í fyrra hafi 233 alvarleg slys og banaslys orðið hérlendis. „Það hefur verið afturför, bæði hvað varðar ástand vega, umferðaröryggi og árangur í fækkun slysa.“ Guðbergur segir mörg verkefni bíða; banaslysin séu orðin of mörg, vegakerfið þarfnist lagfæringa, erlendir ferðamenn þurfi fræðslu og auka þurfi virðingu í umferðinni. „Vonandi getum við lagt á vogarskálarnar til að bæta öryggi í umferðinni – það er stefnan.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira