Telja starfsmann hafa valdið slysinu með ógætilegum akstri Sveinn Arnarsson skrifar 20. apríl 2017 07:00 Slysið átti sér stað kvöldið 22. mars. Karlmanni hefur verið sagt upp vegna málsins. vísir/vilhelm
Öryggisbúnaður krana í kerskála Norðuráls sló út og varð óvirkur þegar tveir kranar rákust saman þann 22. mars síðastliðinn með þeim afleiðingum að kona mjaðmagrindarbrotnaði og hlaut fleiri alvarlega áverka. Karlmanni hefur verið vikið frá störfum en Norðurál telur hann hafa keyrt kranann óvarlega og því hafi slysið átt sér stað. Vinnueftirlitið hefur tekið kranann út árlega og aldrei gert athugasemd við hann. Hins vegar virkar kraninn ekki þegar hann er keyrður í efstu hraðastillingu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er óheimilt samkvæmt reglum Norðuráls að aka krönum á þeirri hraðastillingu og var það ástæða þess að manninum var sagt upp störfum.Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins.vísir/stefánVinnueftirlitið telur málið þannig vaxið að draga þurfi lærdóm af því. „Það er margt sem bendir til þess að þessi búnaður virki ekki eins og hann á að virka undir vissum kringumstæðum,“ segir Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins. „Búnaðurinn er prófaður við vissar aðstæður og þar stenst hann prófanir. Hins vegar virðist öryggisbúnaður slá út þegar krananum er ekið hratt. Það er ekki hægt við eftirlit að láta kranann bakka á fullum hraða og gá hvort hann stöðvist ekki örugglega þegar hann mætir öðrum krana. Við þurfum fyrst og fremst að draga lærdóm af þessu máli og kanna þetta í þaula.“Sólveig BergmannSólveig Bergmann, upplýsingafulltrúi Norðuráls, segir allt gert til að svona slys endurtaki sig ekki. Hún segist ekki geta rætt mál einstakra starfsmanna við blaðamenn. „Annar brúkraninn var kyrrstæður og var hinum brúkrananum ekið á hann. Vinnueftirlitið hefur prófað umræddan brúkrana árlega og ekki gert athugasemdir við virkni eða búnað hans,“ segir Sólveig. „Í kjölfar slyssins var kraninn tekinn úr notkun og hefur árekstrarvörn hans verið breytt samkvæmt nýjum tilmælum Vinnueftirlitsins. Málið er litið alvarlegum augum og verður allt gert til að koma í veg fyrir að atburður sem þessi endurtaki sig,“ bætir Sólveig við.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Fleiri fréttir Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Hinsegin vika er að hefjast í Árborg Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Sjá meira