Rútubílstjóri Íslendinga sofnaði undir stýri í Króatíu: "Mikil mildi að ekki fór verr“ Atli Ísleifsson skrifar 20. apríl 2017 12:53 Skrámur urðu á rútunni eftir að hún rakst utan í vegrið á króatísku hraðbrautinni. Sævar Skaptason er framkvæmdastjóri Bændaferða. Ólafur þór gunnarsson „
Það er mikil mildi að ekki fór verr. Við þetta verður fólkið fyrir sjokki, eðlilega, en það urðu ekki nein slys eða skrámur. Þetta er flokkað sem óþægileg upplifun fólks, til dæmis eins og í flugi, og við erum að bregðast við því,“ segir Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Bændaferða, um atvik sem varð í gær þegar bílstjóri rútu með 49 Íslendinga um borð sofnaði undir stýri með þeim afleiðingum að rútan rakst utan í vegrið á hraðbraut í Króatíu. Sævar segir að í dag sé verið sé að hafa uppi á öllum í hópnum og bjóða því aðstoð vegna atviksins sem varð þegar verið var að aka hópnum frá Dubrovnik til Porec. „Hópurinn var þarna aka um hraðbraut og bílstjórinn hefur greinilega dottað sem varð til þess að rútan rekst utan í vegrið. Upp úr því stoppar hann. Það urðu einhverjar rispur á bílnum en það varð ekki neinn beinn árekstur.“Mbl greindi fyrst frá málinu. Sævar segir að rútan hafi ekki getað verið á meira en 90 kílómetra hraða þar sem þær eru þannig búnar að þær geti ekki farið hraðar. „Þegar svona gerist þá er fólki brugðið. Við skiljum það mjög vel. Það er hvíldardagur í dag og svo kemur nýr rútubílstjóri sem keyrir hópinn til Salzburg í Austurríki þar sem hann verður tvær nætur og flýgur svo heim á sunnudaginn. Í morgun var góður tónn í fólki og veðrið gott.“Rétt að halda áfram með sama bílstjóra Sævar segir að umræddur bílstjóri sé Þjóðverji og starfi á vegum þýsks fyrirtækis sem Bændaferðir hafa lengi átt í viðskiptum við. Eftir að bílstjórinn stöðvaði rútuna fóru farþegar út, en skömmu síðar var ferðinni haldið áfram. Sævar telur að rétt hafi verið að halda áfram með sama bílstjóra, þar sem langan tíma hefði tekið að bíða eftir nýjum og engar aðstæður voru fyrir farþega að bíða á hraðbrautinni í lengri tíma. Aðspurður um að farþegar hafi verið beðnir um að setja ekkert um atvikið á Facebook, segist Sævar ekki vita hvernig það hafi komið til. „Það er aukaatriði í sjálfu sér þar sem fólk setur að sjálfsögðu það á Facebook sem það langar til. Þetta er ekkert feimnismál hjá okkur. Þetta er atvik sem gerist og verkefnið hjá okkur er að vinna úr því gagnvart fólkinu og tryggja að ferðin verði áfram ánægjuleg.“
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Sjá meira