Hillir loks undir krabbameinsáætlun Svavar Hávarðsson skrifar 13. apríl 2017 07:00 Fram til ársins 2030 má gera ráð fyrir 50% fjölgun krabbameinsgreininga. NordicPhotos/GettyImages
Nú styttist mjög í það að krabbameinsáætlun fyrir Ísland líti dagsins ljós. Hins vegar er það gagnrýnt hversu lengi vinnan hefur velkst um í kerfinu. Strax um mitt ár 2014 var boðað að áætlunin yrði lögð fram fyrir árslok. Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, læknir og formaður ráðgjafarhópsins, telur að krabbameinsáætlunin verði send út til umsagnar fljótlega og birt á vef ráðuneytisins – líklega strax eftir páska. „Hún er tilbúin en það er alveg rétt að þetta hefur dregist úr hófi fram. Við skiluðum af okkur í nóvember 2015. Ég tek undir gagnrýni um seinagang í stjórnsýslunni,“ segir Ófeigur. Nefnd gagnrýni hefur ekki síst komið frá félagasamtökum, Krabbameinsfélagi Íslands og Reykjavíkur, sem hafa sent ráðuneytinu erindi og ályktað að undanförnu, til að grafast fyrir um stöðu mála. Þeim skrifum hefur ekki verið svarað formlega. Minnt hefur verið á að Ísland er eina Norðurlandaþjóðin sem hefur ekki enn sett heildstæða krabbameinsáætlun. Mikil vinna hafi verið lögð í áætlunina og hætta sé á að hún verði til lítils ef upplýsingar og gögn úreldast.Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, læknir og formaður ráðgjafarhóps um Krabbameinsáætlunvísir/hannaKrabbameinsfélag Reykjavíkur samþykkti áskorun á heilbrigðisráðherra síðast 20. mars síðastliðinn. Engan tíma megi missa. Nú greinist árlega 1.500 manns með krabbamein og eftir fimmtán ár megi búast við að tilfellum hafi fjölgað um 30% sem skýrist fyrst og fremst af hækkandi meðalaldri og fjölgun íbúa. Ófeigur telur að krabbameinsáætlunin sé gríðarlega mikilvægt verkefni. „Það eru tæplega 15.000 Íslendingar sem eru lifandi með krabbamein í dag. Þetta er orðinn fyrirferðarmikill þáttur í íslenskri heilbrigðisþjónustu, og ekki bara það heldur einnig í félagsþjónustunni,“ segir Ófeigur og bætir við að þessi áætlun sé hluti af stærri heilbrigðisáætlun fyrir Ísland, og það sé á valdi ráðherra að ákveða hvernig farið verður með tillögur ráðgjafarhópsins – hvort unnið verði eftir áætluninni eins og hún kemur fyrir eða lögð verði áhersla á ákveðna þætti hennar. Spurður um þær breytingar sem krabbameinsáætluninni gætu fylgt nefnir Ófeigur hvernig megi samhæfa þjónustu innan heilbrigðiskerfisins og félagslegan stuðning. „Við tökum á því á heildstæðan hátt hvernig fólk fær stuðning, allt frá því það greinist. Það á bæði við um fullorðna og börn. Þetta er voðalega losaralegt og sundurleitt kerfi sem mætir fólki í dag. Full ástæða er til að bæta hér úr því fólk kemur oft mjög laskað út úr meðferð. Þessi skýrsla tekur á þessu frá a til ö,“ segir Ófeigur og nefnir marga fleiri þætti sem ættu að færast til betra horfs, og þar á meðal forvarnir. Mörg vestræn ríki, þar með talin Norðurlöndin, hafa sett fram sínar eigin krabbameinsáætlanir en til samanburðar lauk þessari vinnu árið 1998 í Noregi.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Ný krabbameinsáætlun í lok ársins Heilbrigðisráðherra sagði að þótt við hefðum ekki sigrast á krabbameinum byggjum við nú að viðamikilli þekkingu og upplýsingum sem byggst hafa upp í gegnum árin og áratugina. 12. maí 2014 14:08 Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira
Ný krabbameinsáætlun í lok ársins Heilbrigðisráðherra sagði að þótt við hefðum ekki sigrast á krabbameinum byggjum við nú að viðamikilli þekkingu og upplýsingum sem byggst hafa upp í gegnum árin og áratugina. 12. maí 2014 14:08