Saka Vínbúðirnar um bruðl með almannafé Benedikt Bóas skrifar 14. júlí 2017 07:00 Kaldi býr til bjór en getur ekki auglýst framleiðsluna. Ólíkt ÁTVR sem auglýsir til að minna starfsfólk á að spyrja um skilríki. Fréttablaðið/Pjetur
Eðlilegra hefði verið að senda tölvupóst á starfsmenn eða hreinlega halda starfsmannafund til að minna starfsfólk ÁTVR á að biðja viðskiptavini um skilríki en að fara í tugmilljóna auglýsingaherferð. Þetta er samdóma álit þeirra þingmanna sem styðja áfengisfrumvarpið og Fréttablaðið náði tali af í gær.Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVRAuglýsingaherferð ÁTVR, Röðin, kostaði 13 milljónir króna og sagði Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, í skriflegu svari til fréttastofu 365 að auglýsingarnar væru hvatning og áminning til starfsfólks stofnunarinnar um mikilvægi þess að biðja um skilríki. „Þetta er enn eitt dæmið um hversu ankannalegt er að ríkisfyrirtæki hafi einokunarverslun í smásölu með áfengi,“ segir Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Það er ekki heimilt samkvæmt íslenskum lögum að auglýsa lögmæta vöru þannig að það þarf að fara fjallabaksleiðir til þess. Jafnvel af einokunarfyrirtæki – þannig að jú, þetta er mjög sérstakt mál,“ bætir hann við.Röðin er nýjasta herferð ÁTVR.Raunveruleikaþáttur Auglýsingin er í formi raunveruleikaþáttar þar sem þátttakendur koma fyrir sérhæfða dómnefnd, skipaða tannlækni, lögreglumanni, dyraverði, sálfræðingi og förðunarfræðingi, sem eiga að aldursgreina viðkomandi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, tók í sama streng og Teitur og skildi lítið í því að skattgreiðendur væru að borga fyrir ímyndarbaráttu ríkisfyrirtækis í einokunarstöðu. Áslaug var í viðtali við Í bítið í gær. „Það er dýrt að fara svona með skattpeninga. Það hefði verið auðveldara að senda tölvupóst eða halda starfsmannafund,“ bætti hún við. Teitur segir að þetta dragi fram þá tímaskekkju sem stofnunin ÁTVR sé. „Það er erfitt að átta sig á rekstrinum á þessu fyrirtæki. Hvaða hluti ber þessa starfsemi uppi. Ef maður skoðar starfsmannafjöldann þá eru um 14 starfsmenn á hverja búð. Er það góður rekstur eða ekki? Það er ekki nokkur leið að segja til um það því maður veit ekki hvernig einkaaðilar myndu þjónusta neytendur sem best. Það er engin stjórn yfir þessu fyrirtæki heldur heyrir þetta beint undir fjármálaráðherra. Ég veit ekki til þessa að ráðherra skipti sér af stjórnunarháttum þessarar stofnunar. Það er hægt að draga fram alls konar sérkennilega hluti sem snúa að þessari stofnun og þessi auglýsing er bara enn eitt dæmið.“
Tengdar fréttir Telur að koma Costco hafi áhrif á nýja og umdeilda auglýsingu ÁTVR Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir nýja auglýsingu ÁTVR sem ber yfirskriftina Röðin og er sett upp eins og nokkurs konar raunveruleikaþáttur. 13. júlí 2017 20:00 Raunveruleikaþátturinn Röðin: Milljóna króna auglýsing ÁTVR sætir gagnrýni Auglýsingin er í formi einskonar raunveruleikaþáttar þar sem þátttakendur koma fyrir sérhæfða dómnefnd, skipuðum tannlækni, lögreglumanni, dyraverði, sálfræðingi og förðunarfræðingi, sem eiga að aldursgreina viðkomandi. 12. júlí 2017 22:30 Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira
Telur að koma Costco hafi áhrif á nýja og umdeilda auglýsingu ÁTVR Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir nýja auglýsingu ÁTVR sem ber yfirskriftina Röðin og er sett upp eins og nokkurs konar raunveruleikaþáttur. 13. júlí 2017 20:00
Raunveruleikaþátturinn Röðin: Milljóna króna auglýsing ÁTVR sætir gagnrýni Auglýsingin er í formi einskonar raunveruleikaþáttar þar sem þátttakendur koma fyrir sérhæfða dómnefnd, skipuðum tannlækni, lögreglumanni, dyraverði, sálfræðingi og förðunarfræðingi, sem eiga að aldursgreina viðkomandi. 12. júlí 2017 22:30