Grátur og gnístran tanna vegna glerhýsis Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. júlí 2017 10:10 Þau Stefán, Edda, Gunnar og Óðinn eru ekki par sátt við nýja glerhýsið á Laugavegi. Vísir
Óhætt er að segja að nýtt glerhýsi sem verið er að leggja lokahönd á við Laugaveg 4-6 í miðborg Reykjavíkur hafi vakið mikil viðbrögð. Hýsið stendur á hlut lóðarinnar sem borgin keypti ásamt fasteignum fyrir 580 milljónir árið 2008. Kaupin voru gerð í tengslum við samstarfsyfirlýsingu Ólafs F. Magnússonar og sjálfstæðismanna í borgarstjórn þegar myndaður var nýr meirihluti í borgarstjórn og Ólafur F. varð borgarstjóri. Hugmyndin var að viðhalda 19. aldar götumynd Laugavegar. Sitt sýnist hverjum um hvernig tekist hefur til við uppbyggingu á reitnum. Formaður Íbúasamtaka Miðbæjar, Benóný Ægisson, segir glerrýmið vera skemmdarverk sem blasir nú við í „allri sinni viðurstyggð“ eftir að girðing umhverfis athafnasvæðið var fjarlægð á dögunum. „Væri hægt að fá girðinguna aftur til að hylja þennan ljótleika og smekkleysu?“ spyr hann á Facebooksíðu sinni og það stendur ekki á svörum.Óðinn Jónsson, útvarpsmaður hjá Ríkisútvarpinu, tekur í sama streng og Benóný og segir hýsið vera „forklúrað og afkáralegt.“ Þar með er tónninn gefinn og eru jákvæðar athugasemdir við færslu Benónýs teljandi á fingrum annarrar handar. Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson efast um að glerbyggingin uppfylli það sem var lagt upp með, að viðhalda 19. aldar götumynd - en „ég var náttúrulega ekki uppi á 19. öldinni,“ segir Gunnar hæðinn. Stórleikarnir Edda Björg Eyjólfsdóttir og Stefán Karl Stefánsson eru heldur ekki hrifin. „Guð minn góður hvað þetta er glatað. Fullkomlega smekklaust,“ segir Edda. „Hörmung,“ er dómur Stefáns. Egill Helgason spyr sig að sama skapi á bloggsíðu sinni einfaldrar spurningar: „Er þetta fallegt?“ Það taka þó ekki allir jafn djúpt í árinni og vinir Miðbæjarformannsins. Í frétt á vef Ríkisútvarpsins voru skiptari skoðanir um málið Þar segir einnig að ekki sé ljóst hvaða starfsemi verði í húsinu. Þau séu í eigu Laugastígs ehf. og hafa verið auglýst til sölu og leigu.
Tengdar fréttir Samþykkja sölu húsa að Laugavegi 4 og 6 Borgarráð hefur samþykkt að selja fasteignirnar við Laugaveg 4 og 6 og Skólavörðustíg 1 a. Ákvörðun um þetta var samþykkt í gær með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og flugvallarvina greiddu atkvæði á móti. 29. ágúst 2014 07:00 Sátt um 19. aldar götumynd á Laugavegi Afstaða meirihlutans í Reykjavík til skipulags og uppbyggingar á reitnum Laugavegi 4 til 6 hefur ekkert breyst. Á síðasta sumri hafi náðst góð sátt um skipulag á reitnum í anda þeirrar götumyndar sem mikilvægt sé að standa vörð um á þessum stað. 8. janúar 2009 12:56 Yfir hálfur milljarður tapast vegna Laugavegs 4 og 6 Tap Reykjavíkurborgar vegna uppkaupa húsanna við Laugaveg 4 og 6 fyrir ári síðan verður meira en 500 milljónir króna. Kostnaðurinn við uppkaupin er orðinn hátt í 700 milljónir en þetta kemur fram í bókun Samfylkingarinnar í borgarráði í dag. 12. mars 2009 13:18 Mest lesið Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Erlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Innlent Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings Innlent Fleiri fréttir „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Samfélagið í áfalli vegna málsins Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Kviknaði í bragga á Egilsstöðum Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Sjá meira
Samþykkja sölu húsa að Laugavegi 4 og 6 Borgarráð hefur samþykkt að selja fasteignirnar við Laugaveg 4 og 6 og Skólavörðustíg 1 a. Ákvörðun um þetta var samþykkt í gær með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og flugvallarvina greiddu atkvæði á móti. 29. ágúst 2014 07:00
Sátt um 19. aldar götumynd á Laugavegi Afstaða meirihlutans í Reykjavík til skipulags og uppbyggingar á reitnum Laugavegi 4 til 6 hefur ekkert breyst. Á síðasta sumri hafi náðst góð sátt um skipulag á reitnum í anda þeirrar götumyndar sem mikilvægt sé að standa vörð um á þessum stað. 8. janúar 2009 12:56
Yfir hálfur milljarður tapast vegna Laugavegs 4 og 6 Tap Reykjavíkurborgar vegna uppkaupa húsanna við Laugaveg 4 og 6 fyrir ári síðan verður meira en 500 milljónir króna. Kostnaðurinn við uppkaupin er orðinn hátt í 700 milljónir en þetta kemur fram í bókun Samfylkingarinnar í borgarráði í dag. 12. mars 2009 13:18