Seinheppinn þjófur eltur uppi á einfaldasta máta á gamlárskvöld Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. janúar 2016 10:21 Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Hann virðist ekki hafa hugsað áform sín til enda, þjófurinn sem braust inn í Samkaup á Selfossi að kvöldi gamlársdags. Svo óheppilega vildi til, fyrir þjófinn, að starfsmaður var við þrif í búðinni og lagði þjófurinn því á flótta. Nýfallin fönn varð honum þó ekki til mikillar hjálpar þar sem auðvelt reyndist að rekja spor hans til dvalarstaðar hans. Þetta kemur fram í skýrslu lögreglunnar á Suðurlandi. Maðurinn reyndist hafa fengið sér vel í aðra tánna og bar við minnisleysi þegar hann vaknaði í fangaklefa morguninn eftir. Hann neitaði þó ekki sök. Þá stöðvaði lögregla akstur bifreiðar í Hveragerði í gærkvöldi. Í bílnum var par sem var sýnilega undir áhrifum fíkniefna. Kannabisefni fundust við leit og í þokkabót reyndist fólkið á stolnum bíl. Skipt hafði verið um skráningarmerki á bílnum. Rannsókn stendur yfir og er parið í fangageymslu. Aðfaranótt gamlársdags var maður handtekinn á Höfn í Hornafirði vegna gruns um heimilisofbeldi. Þá lagði kona á Selfossi fram kæru á hendur manni vegna líkamsárásar á skemmtistað í bænum. Áverkar reyndust minniháttar.Helstu verkefni lögreglunnar á Suðurlandi um áramót. Lögreglan á Suðurlandi sendir öllum sínar bestu nýárskveður með ...Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Monday, January 4, 2016
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira