Segir 900 hjúkrunarfræðinga vanta til starfa á Íslandi Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 17. júlí 2016 19:00
Níu hundruð hjúkrunarfræðinga vantar til starfa hér á landi ef ná á mönnunarviðmiðum sem samræmast viðurkenndum gæða - og öryggissjónarmiðum heilbrigðisstofnanna. Þetta segir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. 100 hjúkrunarfræðinga vantar til starfa á Landspítalann. Samkvæmt skýrslu Landlæknis um eflingu gæða og öryggis í íslenskri heilbrigðisþjónustu frá 2014 eiga heilbrigðisstofnanir að setja sér mönnunarviðmið sem samræmast viðurkenndum faglegum viðmiðum, gæða- og öryggissjónarmiðum og hlutverki og þörfum stofnana. Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir íslenskt heilbrigðiskerfi langt frá þeim viðmiðum. „Samkvæmt mannekluskýrslu sem félagið gerði árið 2007, það er orðið svo langt síðan, vantaði þá þegar. Við erum ekki að ná að útskrifa nógu marga. Þörfin í dag er hátt 900 hjúkrunarfræðingar sem við þurfum hér til starfa. Núna þessi árin er verið að útskrifa að meðaltali 118 einstaklinga sem er bara engan veginn nóg,“ segir Guðbjörg. Í mars 2016 voru 2834 starfandi hjúkrunarfræðingar á Íslandi samkvæmt félagatali. Þar af eru rúmlega 17% sextíu ára og eldri og gætu því farið á eftirlaun. Að öllu óbreyttu verður þessi hópur orðinn 24% af starfandi hjúkrunarfræðingum eftir þrjú ár. Hundrað ómönnuð stöðugildi hjúkrunarfræðinga eru nú á Landspítala. Það kemur Guðbjörgu lítið á óvart og segir hún fátt benda til þess að störfin verði mönnuð í bráð. „Hjúkrunarfræðingar eru náttúrlega líka fólks eins og allir hinir, þetta er fjölskyldufólk. Og ef að fólk fær sömu laun eða betri laun fyrir betri vinnutíma og minna álag í starfi þá skilur maður mjög vel að fólk hverfi úr stéttinni og fari og geri annað. Það gefur auga leið.“ Félag hjúkrunarfræðinga sendi bæði menntamálaráðherra og heilbrigðisráðherra bréf um stöðuna í síðasta mánuði. Guðbjörg segir að bæði þurfi að vinna að því að halda hjúkrunarfræðingum í starfi og stórbæta nýliðun í faginu. „Við þurfum samstillt átak bæði menntakerfisins og heilbrigðiskerfisins í því að gera þessi störf meira aðlaðandi og spennandi. Ekki bara til að fleiri geti menntað sig sem hjúkrunarfræðingar og starfað við það, heldur líka að þeir hjukrúkrunarfræðingar sem þegar hafa menntað sig og starfa sem slíkir vilji koma og starfa innan kerfisins. Því að við höfum fjölmörg verkefni.“ Í fyrri útgáfu fréttarinnar kom fram að enginn hefði sótt um þær 100 stöður sem auglýstar hafa verið á spítalanum. Hið rétta er að 100 hjúkrunarfræðinga vantar á Landspítalann en mánaðarlega berast yfirleitt 2-3 umsóknir um sumar stöður sem auglýstar eru.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira