Innlent

Bíll valt í Ártúnsbrekku

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Töluverðar tafir eru á umferð og löng bílaröð í bæði austur og vesturátt.
Töluverðar tafir eru á umferð og löng bílaröð í bæði austur og vesturátt. Vísir/Sindri
Bíll valt í Ártúnsbrekku í Reykjavík í kringum eittleytið í dag og mun tvennt hafa verið í bílnum. Miklar tafir eru á umferð í Ártúnsbrekkunni, bæði í austur og vesturátt en lögregla og sjúkralið er að störfum. Bíllinn sem valt virðist hafa verið á leið niður Ártúnsbrekku, í vesturátt.

Umferð á leiðinni inn í bæinn gengur mjög hægt en bílum er hleypt í gegn í hollum. Sömuleiðis gengur umferð hægt í austurátt og á nærliggjandi umferðaræðum. 

*Uppfært 16.30* Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru þeir sem í bílnum voru færðir á sjúkrahús með minni háttar meiðsli og var opnað aftur fyrir umferð skömmu eftir að slysið varð.

Sjúkralið er að störfum í Ártúnsbrekku.Vísir/Sindri



Fleiri fréttir

Sjá meira


×