Van Gaal: Vorum betra liðið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. febrúar 2016 19:03 Van Gaal var ekki sáttur með að fá bara eitt stig gegn Chelsea.
Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, var ósáttur með að fá á sig jöfnunarmark í uppbótartíma gegn Chelsea í dag. Jesse Lingard kom United yfir með frábæru marki á 61. mínútu en Diego Costa tryggði Chelsea stig þegar hann skoraði í uppbótartíma. Lokatölur 1-1. Van Gaal sagði að sínir menn hefðu átt að vera skynsamari á lokakaflanum þegar United var nánast í nauðvörn. „Ég er mjög svekktur því við vorum betra liðið, aftur. Og við unnum ekki. Við fengum betri færi en okkur mistókst að vinna,“ sagði Hollendingurinn sem vísaði þarna til fyrri leiks United og Chelsea á Old Trafford sem lyktaði með markalausu jafntefli. „Við spiluðum frábærlega þangað til það var stundarfjórðungur eftir. Við héldum boltanum ekki eins vel og ég vildi. Við vorum líka óheppnir og fengum á okkur mark. Þetta er ótrúlegt. „Chelsea beitti löngum sendingum fram og setti meiri ákafa í sóknina en þú verður að halda boltanum betur og vera yfirvegaðri í varnarleiknum. Það gengur ekki að sparka boltanum frá sér að ástæðulausu.“ Van Gaal var einnig ósáttur með dómara leiksins, Michael Oliver, og sagði að Chelsea hefði fengið mikið af ódýrum aukaspyrnum. „Svo voru það allar aukaspyrnurnar. Þetta voru ekki allt aukaspyrnur en dómarinn dæmdi þær samt undir lok leiksins,“ sagði Van Gaal og bætti við: „Hann leyfði Chelsea líka að taka hornspyrnu þegar uppbótartíminn var liðinn og flautaði svo af þegar við vorum komnir í skyndisókn.“
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira