Innlent

Fyrsta heildstæða stefnan á landsvísu samþykkt

Svavar Hávarðsson skrifar
Sambúð manns og lands er brennipunktur stefnunnar.
Sambúð manns og lands er brennipunktur stefnunnar. vísir/vilhelm
Alþingi samþykkti í liðinni viku þingsályktun Sigrúnar Magnúsdóttur umhverfisráðherra um landsskipulagsstefnu 2015-2026. Samþykkt hennar markar tímamót í skipulagsmálum hér á landi þar sem í fyrsta sinn er sett fram heildstæð stefna ríkisins á landsvísu um skipulagsmál.

Landsskipulagsstefna samþættir áætlanir á vegum stjórnvalda um samgöngur, byggðamál, náttúruvernd, orkunýtingu og aðra landnýtingu, en með stefnunni hafa sveitarfélög aðgang að stefnu ríkisvaldsins um skipulagsgerð á einum stað.

Landsskipulagsstefnan setur fram stefnu um fjögur viðfangsefni, þ.e. skipulag á miðhálendi Íslands, skipulag í dreifbýli, búsetumynstur og dreifingu byggðar og skipulag á haf- og strandsvæðum – eins og segir í tilkynningu.

Í landsskipulagsstefnu er lagt til grundvallar að skipulag byggðar og landnotkunar stuðli að sjálfbærri þróun, skipulagið sé sveigjanlegt og stuðli að seiglu gagnvart samfélags- og umhverfisbreytingum, það stuðli að lífsgæðum fólks og styðji samkeppnishæfni landsins alls og einstakra landshluta.

Í landsskipulagsstefnu eru sett fram sjónarmið og áherslur í skipulagsmálum, sem eru til útfærslu í skipulagsáætlunum sveitarfélaga, en sveitarfélögum ber að taka mið af stefnunni við gerð skipulagsáætlana. Landsskipulagsstefna getur einnig haft áhrif á áætlanir stjórnvalda á landsvísu í málaflokkum sem varða landnotkun og byggðaþróun.

Auk þess að vera framfylgt í gegnum skipulagsáætlanir sveitarfélaga og áætlanagerð ríkisins, felur landsskipulagsstefna einnig í sér tiltekin verkefni, svo sem leiðbeiningar- og þróunarverkefni, til að hrinda markmiðum stefnunnar í framkvæmd.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 21. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×