Þúsundir þurfa aðstoð vegna bágs efnahags Sveinn Arnarson skrifar 16. desember 2016 07:00 Mæðrastyrksnefnd úthlutar jólamat til fátækra á hverju ári. Vísir/Ernir
Ástandið nú í góðærinu er síst betra nú en rétt eftir hrun og margir sem búa við mjög kröpp kjör,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands. Í sama streng tekur Aðalheiður Frantzdóttir, framkvæmdastjóri Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, sem segir leigumarkaðinn fátæktargildru og hægt væri að stemma stigu við fátækt með félagslegu leiguhúsnæði. „Þeir sem eru allra verst settir nú eru öryrkjar og eldri borgarar. Þetta er fólk sem hefur ekki mikið milli handanna og hefur ekki efni á að halda jól,“ segir Ásgerður Jóna. „Við erum að hjálpa um 700 fjölskyldum og á bak við það eru rúmlega 2.000 einstaklingar í brýnni þörf fyrir hjálp okkar.“ Að mati Fjölskylduhjálpar Íslands er ástandið mun verra en af er látið í dag og uppgangurinn sé ekki hjá öllum. Fjölskylduhjálp verður með úthlutanir fyrir jólin bæði í Reykjavík og í Reykjanesbæ. Ásgerður segir einstaklingana sem koma til þeirra vera fasta í viðjum fátæktar. „Við skoðum staðgreiðslu og framtöl til að átta okkur á þörfinni. Við erum búin að vera með þetta ferli í mörg ár. Þá sjáum við hverjir þurfa og hverjir þurfa ekki,“ segir Ásgerður. „Það er góðæri hjá hellingi af fólki, en eftir sitja stórir hópar okkar samfélags,“ segir Aðalheiður Frantzdóttir hjá Mæðrastyrksnefnd. Nefndin hjálpar um fjögur þúsund manns en 1.200 umsóknir hafa borist nefndinni fyrir þessi jól og munu hún hjálpa þeim öllum með bæði matargjöfum og jólagjöfum fyrir börn og annað sem þarf til að halda jólin. „Nú er ekki mikið um atvinnuleysi en hjá okkur fjölgar námsmönnum og öðrum sem eiga ekki til hnífs og skeiðar vegna leigumarkaðarins á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Ásgerður. „Væri til alvöru félagslegur leigumarkaður gætum við fækkað þeim sem þurfa hjálp hjá okkur um 60 prósent. Einnig eru þeir sem eru fátækir að verða fátækari en áður var – þeir sem til okkar koma.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Fleiri fréttir Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Sjá meira