Innlent

Forsætisráðherra skautaði hjá afsögn Sigmundar Davíðs í skýrslu um stöðu þjóðmála

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Sigurður Ingi Jóhannesson, forsætisráðherar.
Sigurður Ingi Jóhannesson, forsætisráðherar. Vísir/Stefán
„Við getum verið stolt af stöðu efnahagsmála,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra meðal annars í munnlegri skýrslu um stöðu þjóðmála á Alþingi í dag. Alþingi kom aftur saman í dag eftir sumarleyfi.

Forsætisráðherrann lagði áherslu á að staða efnahagsmála í landinu sé góð. Hann sagði jafnframt að ef að framtíðin ætti að vera jafn björt og nú, skipti máli hver sitji við stjórnvölinn. Engin trygging væri fyrir því að ástandið haldist óbreytt. Þá sagði hann einnig að bættur hagur heimila og fyritækja skili sér í bættum ríkisrekri, þá benti hann á að atvinnuleysi hafi aldrei verið lægra frá byrjun ársins 2009 og að á síðasta ári hafi orðið til 6.000 ný störf.

„Meira að segja hin fræga væntingavísitala Gallup nálgast hámarkið fyrir efnahagshrunið. Það má því með nokkru sanni leyfa sér að fullyrða að ástandið í efnahagsmálum núna sé ansi gott, jafnvel einstakt um margt.“

Ekki hægt að skauta yfir afsögn ráðherra 

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri Grænna, gaf ekki mikið fyrir orð forsætisráðherrans, og gagnrýndi hann meðal annars fyrir að tala ekki um hátt vaxtastig eða afsögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Sagði Katrín að ekki væri hægt að skauta yfir slíkt þegar talað væri um stöðu þjóðmálanna. 

Katrín sagði jafnframt að aðgerðir ríkistjórnanna frá árinu 2013 hefðu einkennst að forgangsröðun sem passi meira upp á hag hinna efnameiri. „Það rekur sig allt aftur til fyrsta verkefnis ríkisstjórnar sem var að lækka veiðigjöld,“ sagði Katrín. „Það besta sem ríkisstjórnin sem hefur gert í þessum málum var að senda fram fréttatilkynningu sem byggði á tölum frá 2013.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×