Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Í kvöldfréttum Stöðvar tvö verður rætt við Birgittu Jónsdóttur sem segir Pírata stefna á að niðurgreiða tannlækningar fyrir alla landsmenn. Verkefnið gæti kostað um ellefu miljarða króna og segir Birgitta til greina koma að nota fiskveiðistjórnarkerfið til að greiða fyrir verkefnið.

Í kvöldfréttum verður einnig rætt við formenn stjórnarandstöðuflokkanna sem funduðu í dag en formaður Vinstri grænna segir varhugavert að ætla að klára ný og stór mál á komandi þingi, en þingstörf hefjast að nýju á morgun.

Þá kynnum við okkur umhirðu og umgengni í hliðargötum miðborgar Reykjavíkur en íbúar þar sem þær oft mæta afgangi í hreinsunarstörfum.

Einnig verður rætt við unga kanadíska stúlku sem ferðast um heiminn og syngur þjóðsöngva á tungu innfæddra. Hún söng íslenska þjóðsönginn með tilþrifum fyrir framan Hallgrímskirkju í dag.

Þetta og meira til í kvöldfréttum Stöðvar 2, klukkan 18:30 á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar og í beinni útsendingu á fréttavefnum Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×