Gestur hnuplar af útilegumanni Garðar Örn Úlfarsson skrifar 25. júlí 2016 07:00 Tryggvi Hansen mundar forláta boga framan við kofaskrifli sen hann leitaði skjóls í er hann lét undan frostinu í tjaldinu. vísir/vilhelm „
Það kom hér maður í heimsókn og þóttist vera vinur minn,“ segir Tryggvi Hansen sem í sumar hefur orðið fyrir barðinu á þjófi og skemmdarvargi í búðum sínum. Tryggvi hefur haldið til í skóglendi í útjaðri Reykjavíkur. Lengstum dvaldi Tryggvi í tjaldi en kveðst á endanum hafa orðið leiður á því að vera alltaf í frosti og flutti sig þá yfir í leifarnar af gömlum sumarbústað á svæðinu. Þar hafi hann reyndar gefist upp líka vegna mikils sagga og flutt sig undir plasttjald. Sumarið nýtir Tryggvi til að búa sig betur undir næsta vetur. Hann er einn þekktasti torfhleðslumaður landsins og nýtir kunnáttu sína. Hann er með egglaga byggingu í smíðum. „Hér verður paradís í eina átt og siðmenningarstofa í aðra átt, það er sem sagt garður og búr og kot í smíðum,“ útskýrir Tryggvi sem býður fólki til sín að læra torfhleðslu. „Þeir læra um veggjagerð og viðarbygginguna inn í og þakið. Og líka um sögu torfbæjarins í gegnum aldirnar, frá hellum og borgum í skála og torfbæ.“ Að mati Tryggva ættu allir Íslendingar að læra að hlaða kot. „Stað þar sem aldrei frýs, þar sem alltaf eru fjórar gráður, jafnvel þótt skelli á ísöld,“ útlistar hann og bætir við að þeir sem komi á námskeið í grjótröðun og byggingalist megi koma með timbur með sér. „Og hver sem ætlar að kasta viðum eða vill gefa við hingað er velkominn þakklátlega.“ Sem fyrr segir fékk Tryggvi óæskilega heimsókn á dögunum. „Sumt hvarf og öðru var dreift hér yfir alla móa,“ segir Tryggvi sem kveðst hafa reiknað út að þjófurinn og skemmdarvargurinn sé maður sem heimsótti hann á dögunum og spilaði sig vinveittan en hafi reynst úlfur í sauðagæru. „Vonandi fæ ég ekki slíka heimsókn aftur.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. júlí
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Ísland í dag kíkir í heimsókn til Tryggva Gunnars Hansen Tryggvi Gunnar Hansen hefur búið í tjaldi í újaðri Reykjavíkur undanfarna mánuði. 30. september 2015 20:15 Ósátt kona í úthverfi safnar liði og leitar að Tryggva Gunnari Hansen „Ég mun fara þarna um og leita,“ segir kona sem býr í einu úthverfa höfuðborgarsvæðisins og telur ótækt að listamaðurinn Tryggvi Gunnar Hansen hafi hreiðrað um sig til búsetu í skógarrjóðri. 30. september 2015 07:00 Mest lesið Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Stúlkan er fundin Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Fleiri fréttir Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Sjá meira
Ísland í dag kíkir í heimsókn til Tryggva Gunnars Hansen Tryggvi Gunnar Hansen hefur búið í tjaldi í újaðri Reykjavíkur undanfarna mánuði. 30. september 2015 20:15
Ósátt kona í úthverfi safnar liði og leitar að Tryggva Gunnari Hansen „Ég mun fara þarna um og leita,“ segir kona sem býr í einu úthverfa höfuðborgarsvæðisins og telur ótækt að listamaðurinn Tryggvi Gunnar Hansen hafi hreiðrað um sig til búsetu í skógarrjóðri. 30. september 2015 07:00