Innlent

Í beinni: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Níu hundruð hjúkrunarfræðinga vantar til starfa hér á landi ef ná á mönnunarviðmiðum sem samræmast viðurkenndum gæða - og  öryggissjónarmiðum heilbrigðisstofnana. Þetta kemur fram  í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Í fréttatímanum verður einnig fjallað um ástandið í Tyrklandi en stöðugleiki er að komast á í landinu eftir misheppnaða valdaránstilraun hersins. Sex þúsund manns hafa verið handteknir vegna hennar. Þar af tæplega þrjú þúsund dómarar og saksóknarar sem eru taldir eiga aðild að samsærinu.

Í fréttatímanum fjöllum við líka um ísbjörninn sem skotinn var á Skaga og afdrif hræsins og óábyrga hegðun íslenskra ungmenna undir stýri en um helmingur ungs fólks notar farsíma undir stýri þótt það sé stórhættulegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×