Innlent

Þorgrímur Þráinsson hlýtur viðurkenningu Barnaheilla

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Frá afhendingu viðurkenningarinnar í dag.
Frá afhendingu viðurkenningarinnar í dag. Mynd/Barnaheill
Þorgrímur Þráinsson rithöfundur hlaut í dag viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Í tilkynningu segir að Þorgrímur hafi um langt skeið verið börnum góð fyrirmynd með jákvæðri afstöðu sinni til lífsins, heilbrigðu líferni og drifkrafti.

„Bækur hans, sem nú telja 23, þekkja velflestir íslenskir krakkar. Þær innihalda jákvæðan boðskap og andlega nærandi skilaboð og eru þannig hvatning til yndislestrar. Auk ritstarfa hefur Þorgrímur unnið ötullega að lýðheilsumálum og forvörnum og er góð fyrirmynd. Hann hefur meðal annars heimsótt skóla um allt land til að hvetja börn til að lifa heilbrigðu og skemmtilegu lífi. Þá hefur hann gegnt ýmsum hlutverkum í forvarnarmálum, meðal annars sem framkvæmdastjóri Tóbaksvarnarnefndar og nú síðast með þátttöku við gerð nýrrar lýðheilsustefnu og aðgerðaráætlunar á vegum ráðherranefndar um lýðheilsu,” segir í tilkynningunni.

Barnaheill veita árlega viðurkenningu fyrir framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember.

Afhending viðurkenningarinnar fór fram í veislusal veitingastaðarins Nauthóls. Kolbrún Baldursdóttir, formaður Barnaheilla, flutti ávarp og tilkynnti um viðurkenningahafann. Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður og talsmaður barna á Alþingi, flutti ávarp í tilefni af Degi mannréttinda barna. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var einnig viðstaddur og hélt ræðu.

Barnaheill - Save the Children á Íslandi eru hluti af alþjóðasamtökunum Save the Children International. Alþjóðasamtökin vinna að réttindum og velferð barna í rúmlega 120 löndum og hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Hérlendis leggja samtökin áherslu á að standa vörð um réttindi barna, á þátttöku barna og á vernd barna gegn ofbeldi. Erlendis styðja Barnaheill - Save the Children á Íslandi menntun barna og mannúðarstarf vegna hamfara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×