Innlent

Fjórum kanóræðurum bjargað

Vísir
Fjórir menn í kanó voru hætt komnir í Holtsósi undir Eyjafjöllum síðdegis í gær. Kallað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem hélt af stað með tvo kafara innanborðs, en áður en hún kom á vettvang hafði vegfarendum og ábúendum á bænum Varmahlíð, tekist að bjarga þremur úr sjónum, en sá fjórði komst í land af sjálfsdáðum.

Voru þeir allir orðnir mjög kaldir og hraktir, en ekki er talið að þeim verði meint af. Fréttastofunni er ekki kunngt um hvað olli því að þeir lentu í ógöngum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×