Fyrsta heildstæða stefnan á landsvísu samþykkt Svavar Hávarðsson skrifar 21. mars 2016 07:00 Sambúð manns og lands er brennipunktur stefnunnar. vísir/vilhelm
Alþingi samþykkti í liðinni viku þingsályktun Sigrúnar Magnúsdóttur umhverfisráðherra um landsskipulagsstefnu 2015-2026. Samþykkt hennar markar tímamót í skipulagsmálum hér á landi þar sem í fyrsta sinn er sett fram heildstæð stefna ríkisins á landsvísu um skipulagsmál. Landsskipulagsstefna samþættir áætlanir á vegum stjórnvalda um samgöngur, byggðamál, náttúruvernd, orkunýtingu og aðra landnýtingu, en með stefnunni hafa sveitarfélög aðgang að stefnu ríkisvaldsins um skipulagsgerð á einum stað. Landsskipulagsstefnan setur fram stefnu um fjögur viðfangsefni, þ.e. skipulag á miðhálendi Íslands, skipulag í dreifbýli, búsetumynstur og dreifingu byggðar og skipulag á haf- og strandsvæðum – eins og segir í tilkynningu. Í landsskipulagsstefnu er lagt til grundvallar að skipulag byggðar og landnotkunar stuðli að sjálfbærri þróun, skipulagið sé sveigjanlegt og stuðli að seiglu gagnvart samfélags- og umhverfisbreytingum, það stuðli að lífsgæðum fólks og styðji samkeppnishæfni landsins alls og einstakra landshluta. Í landsskipulagsstefnu eru sett fram sjónarmið og áherslur í skipulagsmálum, sem eru til útfærslu í skipulagsáætlunum sveitarfélaga, en sveitarfélögum ber að taka mið af stefnunni við gerð skipulagsáætlana. Landsskipulagsstefna getur einnig haft áhrif á áætlanir stjórnvalda á landsvísu í málaflokkum sem varða landnotkun og byggðaþróun. Auk þess að vera framfylgt í gegnum skipulagsáætlanir sveitarfélaga og áætlanagerð ríkisins, felur landsskipulagsstefna einnig í sér tiltekin verkefni, svo sem leiðbeiningar- og þróunarverkefni, til að hrinda markmiðum stefnunnar í framkvæmd.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 21. mars.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Sjá meira