Vinna beingræði úr rækjuskel Svavar Hávarðsson skrifar 4. febrúar 2016 07:00 Frá vinstri að telja er rannsókna- og þróunarteymi Genís, þau Unnur Magnúsdóttir, Jóhannes Gíslason, Jón M. Einarsson og Lilja Kjalarsdóttir. Úr teyminu vantar Ng Chuen How. mynd/Genís
Líftæknifyrirtækið Genís á Siglufirði hefur markaðssett tvö fæðubótarefni sem unnin eru úr rækjuskel. Fæðubótarefnin eru árangur áralangrar rannsóknar- og þróunarvinnu við að vinna verðmæti úr hráefni sem um áratugaskeið var hent. Þróun á efni til að græða beinvef eftir beinbrot eða annan alvarlegan skaða er langt á veg komin. Lilja Kjalarsdóttir, framkvæmdastjóri Rannsóknar- og þróunarsviðs hjá Genís, segir að rannsóknar- og þróunarstarf fyrirtækisins hafi staðið yfir síðastliðin ellefu ár, og því sé um stóran áfanga að ræða hjá fyrirtækinu nú þegar tvær fyrstu vörurnar eru komnar í hillur lyfjaverslana. „Þetta er vissulega búið að vera lengi í fæðingu og því stór áfangi. Þess utan erum við með fleiri vörur í þróun sem eru langt komnar,“ segir Lilja og tekur undir að þegar leikmaður les um virkni efnanna þá fari ekki á milli mála hversu mikil vísindi liggja þeim að baki. „Við höfum fengið stór alþjóðleg ráðgjafarfyrirtæki til okkar þar sem við erum að undirbúa markaðssetningu um allan heim, og fulltrúar þeirra hafa látið þess getið hversu sérstakt það er að svo mikil rannsóknarvinna liggi að baki vöru sem er seld sem fæðubótarefni, hvað þá að vera svo vel varin af einkaleyfum.“ Í samhengi segir Lilja að Genís sé að stíga fyrstu skrefin inn á lækningatækjamarkaðinn með því að nýta þekkingu og tækni sem fyrirtækið er búið að byggja upp á rúmum áratug. Tæknin, sem er varin einkaleyfi, liggur að baki efni sem best verður lýst sem beingræði; efni sem græðir skaddað bein. Efninu, BoneReg-Inject™, er sprautað í laskaðan beinvef og skapar umhverfi fyrir nýmyndun beinvefs með góða tengingu við aðliggjandi bein og án nokkurrar örvefsmyndunar. Verkefnið er unnið í samstarfi við innlenda og erlenda bæklunarskurðlækna, og í tilraun á öldruðum kindum tókst á nokkrum mánuðum að loka holu í beini sem var átta millimetrar í þvermál. „Miðað við þau efni sem nýtt eru í dag eru þetta hreint ótrúlegar niðurstöður. Tilraunir hingað til hafa verið eingöngu í dýrum en nú styttist í að klínískar tilraunir hefjist,“ segir Lilja. Fyrir tveimur árum hófst undirbúningur að markaðssetningu fullþróaðra vara og þróunarverksmiðja var sett á laggirnar. Starfsmenn á Íslandi eru sextán; fimm í rannsóknar- og þróunardeild til húsa í Nýsköpunarmiðstöð Íslands í Reykjavík en ellefu í verksmiðju á Siglufirði.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Innlent Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Innlent Fleiri fréttir Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Seinka opnun Vesturbæjarlaugar lítillega Óvenjulegt fyrir göngufólk og sannkallað Spánarveður Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Lokametrarnir á Alþingi og veðurblíða um allt land Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli „Við erum bara happí og heimilislaus“ Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Sjá meira