Leicester náði sex stiga forskoti með öruggum sigri á Etihad | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. febrúar 2016 14:30 Leicester-menn fagna fyrsta marki leiksins. Vísir/Getty
Ævintýri Leicester City heldur áfram en í dag náði liðið sex stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 1-3 sigri á Manchester City á útivelli.Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan. Leicester er nú komið með 53 stig þegar aðeins 13 umferðum er ólokið. City er í 2. sætinu með 47 stig. Með sigri á Watford síðar í dag kemst Tottenham upp fyrir City í 2. sætið. Leicester byrjaði leikinn frábærlega og strax á 3. mínútu kom Robert Huth Refunum yfir með skoti af stuttu færi eftir aukaspyrnu Riyad Mahrez. City-menn voru miklu meira með boltann en það voru Leicester-menn sem fengu betri færi. Jamie Vardy, markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar, var alltaf líklegur en Joe Hart sá við honum í dag. Staðan var 0-1 í hálfleik en á 48. mínútu kom Mahrez gestunum tveimur mörkum yfir með frábæru marki. Leicester vann boltann á eigin vallarhelmingi og brunaði fram, Mahrez fékk boltann, lék auðveldlega á Martín Demichelis og þrumaði svo boltanum í netið. Sex mínútum síðar fékk Fernando kjörið tækifæri til að minnka muninn fyrir City en Kasper Schmeichel varði skalla hans af stuttu færi frábærlega. Á 60. mínútu kom Huth Leicester svo í 0-3 með sínu öðru marki. Þjóðverjinn skallaði þá hornspyrnu Christian Fuchs í netið. Sergio Agüero minnkaði muninn í 1-3 á 87. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá varamanninum Bersant Celina. Fleiri urðu mörkin ekki og Leicester fagnaði góðum sigri, þeim fyrsta á City frá árinu 2003.Man City 0-1 Leicester Man City 0-2 Leicester Man City 0-3 Leicester Man City 1-3 Leicester
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Fleiri fréttir Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Sjá meira