Greiða út desemberuppbót til atvinnuleitenda Atli Ísleifsson skrifar 21. nóvember 2016 09:04 Gert er ráð fyrir að desemberuppbætur verði greiddar út eigi síðar en 18. desember. Vísir/hanna
Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur sett reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Óskert desemberuppbót er 60.616 krónur. Frá þessu segir í frétt velferðarráðuneytisins. Þar segir að nýmæli séu að atvinnuleitendur með börn á framfæri fái jafnframt sérstaka uppbót sem nemi fjögur prósentum af óskertri desemberuppbót, eða rúmum 2.400 krónum fyrir hvert barn yngra en átján ára. „Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2016 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánuða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum, heldur nemur í öllum tilvikum 4% af óskertri desemberuppbót sem eru rúmar 2.400 kr. fyrir hvert barn. Gert er ráð fyrir að desemberuppbætur verði greiddar út eigi síðar en 18. desember,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Erlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Fleiri fréttir „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Sjá meira