Kynna app íslenskrar tungu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 16. nóvember 2016 07:15 Talmeinafræðingarnir Ásthildur Bj. Snorradóttir og Bjartey Sigurðardóttir komu forritinu Orðagulli á koppinn. mynd/aðsend
Smáforritið Orðagull, málörvunarapp fyrir spjaldtölvur, kemur út í dag í tilefni af degi íslenskrar tungu. Forritið er hannað fyrir elstu börn í leikskóla og yngstu börn í grunnskóla. Viðburðurinn er aðeins einn fárra í tilefni dagsins. Í Hörpu mun forseti Íslands opna vefsíðuna málið.is og boðið verður upp á upplestur verðlaunahafa í Stóru upplestrarkeppninni. Dagskrá verður einnig í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum, Flensborgarskólanum, á vegum íslenskunema í Háskóla Íslands í Árnagarði og í sendiráði Íslands í Ósló. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu menntamálaráðuneytisins. Höfundar eru Bjartey Sigurðardóttir, talmeinafræðingur og læsisráðgjafi hjá Menntamálastofnun, og Ásthildur Bj. Snorradóttir, talmeinafræðingur hjá Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. Árið 2010 gáfu þær út bók sem bar sama nafn en smáforritið byggir á sama grunni. „Hugmyndin kviknaði þegar spjaldtölvuvæðingin hófst. Margir leik- og grunnskólar bjóða upp á kennslu á spjaldtölvur en námsefni á íslensku skortir,“ segja Bjartey og Ásthildur. Hún segir að í talmeina- og læsisheimum merki menn augljósan mun á hve orðaforða íslenskra barna er að fara aftur. „Mörg börn kunna orðin á ensku en ekki íslensku. Það er gott mál ef börn læra annað tungumál en það er grafalvarlegt ef það bitnar á íslenskunni.“ Útgáfa forritsins er lítið skref í að bregðast við þessari þróun. Smáforritið kemur út í dag og verður fáanlegt ókeypis fyrir tæki með iOS-stýrikerfi. Þegar lagt var í vinnuna var markmiðið að hafa forritið frítt og það tókst með styrkjum frá Rannís, Barnavinafélaginu Sumargjöf og Minningarsjóði Bjarna Snæbjörnssonar og Helgu Jónsdóttur.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.Mynd sem sýnir hluta forritsins.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Sjá meira