Íslendingar tapa háum fjárhæðum í íbúðasvindli Ásgeir Erlendsson skrifar 4. desember 2016 19:30
Dæmi eru um að Íslendingar hafi tapað mörg hundruð þúsund krónum á íbúðasvindli á netinu. Lögreglan varaði við slíku svindli í dag en rannsóknarlögreglumaður segir útlendinga, búsetta hér á landi, sérstaklega útsetta fyrir svindli sem þessu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vakti athygli á þessu á facebook síðu sinni í morgun og tók dæmi um nýlegar auglýsingar sem birst hafa á íslenskum vefsíðum þar sem íbúðir eru boðnar til leigu en eru ekkert annað en svindl. Gísli Jökull Gíslason, rannsóknarlögreglumaður, sem rannsakað hefur glæpi sem þessa segir að oft sé ómögulegt að sjá í fyrstu að um svindl sé að ræða. „Við erum með nýtt dæmi á facebook síðu lögreglunnar þar sem íslenskan er óaðfinnanleg. Þá geri ég ráð fyrir að sá sem er að svindla sem er að svindla hafi afritað einhverja aðra auglýsingu.“ Hann segir brot sem þessi hafi aukist á undanförnum árum. „Við höfum séð það að þeir sem beita þessum brotum eru farnir að nota íslenskar síður, þ.e heimahýsingar hjá bland.is eða mbl.is. Þessi fyrirtæki hafa engan áhuga á að vera notuð svona en það er auðvelt að skrá eign á svona vef, það er gert útaf hagræðissjónarmiði. Þá er líka auðvelt fyrir þann sem ætlar að svindla að nota sömu tækni. “ Í mörgum tilfellum er erfitt fyrir lögreglu að bregðast við því yfirleitt er brotamaðurinn ekki staddur á Íslandi. „Við erum með dæmi þar sem fólk missti hátt undir milljón því það var hópur sem ætlaði að leigja íbúð í París og lenti í sambærilegu.“Rætt er við Gísla Jökul í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Umferðarslys austan við Vík Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin Sjá meira