Ekki ákveðið hvernig verja eigi fjármagninu Sveinn Arnarson skrifar 17. desember 2016 07:00 Flytja þarf út þúsund tonn til viðbótar að mati sláturleyfishafa. Vísir/Valli
Ekki hefur enn verið ákveðið hvernig þeim eitt hundrað milljónum sem á að verja til að styðja útflutning lambakjöts verður varið nákvæmlega. Markaðsráð kindakjöts mun fá fjármagnið til nýtingar þó frumvarpið geri ráð fyrir að þeir fari til verkefnisins Matvælalandið Ísland.þórarinn ingi Pétursson„Það er fullsnemmt að segja til um hvernig eigi að gera þetta því þetta er ekki komið enn þá,“ segir Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda og formaður markaðsráðs kindakjöts. „Nú er vinna hafin við að greina það hvað hægt er að gera, síðan eigum við eftir að fara nákvæmlega ofan í það hvernig við nýtum fjármagnið.“ Í fjáraukalögunum er sérstaklega tilgreint að verulegt tap sé á sölu kindakjöts og því þurfi að bregðast við. Bent er á að Evrópusambandið og Bandaríkin kaupi mikið magn landbúnaðarafurða þegar hart er í ári og erfiðleikar á mörkuðum til að sporna við verðfalli. Því eru þessar 100 milljónir í anda þess sem gert er beggja vegna Atlantshafsins. Koma þarf út um eitt þúsund tonnum af framleiðslu ársins í ár til að verðlag haldist stöðugt hér á landi og ekki safnist fyrir birgðir. Um 10.400 tonn voru framleidd í síðustu sláturtíð og 60 prósent þeirrar framleiðslu fara á innanlandsmarkað. „Við í markaðsráðinu báðum ekki um þetta fjármagn sem slíkt en okkur er falið það verkefni að koma þessum fjármunum í þann farveg að þeir liðki til fyrir útflutningi,“ segir Þórarinn. Heimildir Fréttablaðsins herma að samningaviðræður hafi verið hafnar í haust við atvinnuvegaráðuneytið um fjármagn til að sporna við erfiðri stöðu og að nokkrir fundir hafi verið haldnir milli sláturleyfishafa, Landssamtaka sauðfjárbænda og ráðuneytisins. Hafi útflutningsaðilar óskað eftir um þrefaldri þeirri upphæð sem þeir fá nú samkvæmt fjáraukalögum. Í ofanálag fær Matvælalandið Ísland 400 milljónir til að vinna að útflutningi landbúnaðarafurða á Íslandi næstu árin.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Drengirnir hafi látið vita af sér Innlent Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Erlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Fleiri fréttir Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Tvö mál í dag þar sem ógnað var með hnífi Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Sjá meira