Innlent

Landsmenn streyma norður í land

Gissur Sigurðsson skrifar
Frá Fiskideginum mikla árið 2014.
Frá Fiskideginum mikla árið 2014. Vísir/Auðunn
Mikil umferð var norður í land frá því um miðjan dag í gær og langt fram eftir kvöldi. Fjöldi fólks er nú saman kominn á Dalvík vegna fiskidagsins þar og fjöldi er orðinn á tjaldstæðinu í Hrafnagili, þar sem handverkssýningin verður um helgina.

Þá segir lögregla að líka sé orðið fjölmennt á tjaldstæðunum á Akureyri. Búist er við að enn fjölgi í dag og að þetta verði lang fjölmennasta ferðahelgin norðan heiða í sumar. Að sögn lögreglu gekk umferðin vel og engin slys eða óhöpp urðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×